Logo Alþjóðlega Geðheilbrigðisdagsins

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2022.

When:
20. október, 2022 @ 19:30 – 20:30
2022-10-20T19:30:00+00:00
2022-10-20T20:30:00+00:00
Where:
Faxafen
108 Reykjavík
Ísland
Contact:
Hörður Jónasson
+3547774477

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 16 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 20. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30.

Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu!

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Eftirfarandi verðlaun eru þessi:

  1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
  2. Sæti: Silfur peningur + bók.
  3. Sæti: Brons peningur + bók.
  4. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
  5. Sæti: 60 +: Gull peningur + bók.
  6. Sæti: U16: Gull peningur + bók.

Skráningarform: Geðheilbrigðisskákmótið 2022

Til að sjá hverjir hafi skráð sig: Sjá skráningu skákmanna

Allir velkomnir!!

Skrifa svar

Netfangið verður ekki notað í öðrum tilgangi.Fylla þarf út sérmerkta reiti *

*