Í dag mánudaginn 2 desember 2024 var jólaskákmót Vinaskákfélagsins haldið í Vin Dagsetur. Tefldur voru 6 umferðir með 7 mín., á klukkunni. Mættir voru 12 skákmenn til leiks. Karina sjálfboðaliði Vinjar lék fyrsta leikinn fyrir Róbert Lagerman á móti Hjálmari Sigurvaldasyni. Sigurvegari varð Róbert Lagerman með 5,5 vinninga 2 sæti varð Ólafur Thorsson líka með 5,5 vinninga. 3 sæti varð ...
Lesa »Author Archives: Hörður Jónasson
Jólaskákmót Vinaskákfélagsins 2024.
Hið árlega Jólaskákmót Vinaskákfélagsins fer fram mánudaginn 2 desember í Vin Dagsetur, Hverfisgötu 47. Mótið hefst klukkan 13:00 stundvíslega. Mótið er 6 umferðir með 7 mínútur á klukkuna. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. Skákdómari verður Róbert Lagerman en mótstjóri er Hörður Jónasson. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í Vin. Glæsileg verðlaun verða í boði og vonast stjórn Vinaskákfélagsins ...
Lesa »Vinaskákfélagið fékk styrk frá Styrktarsjóði Geðheilbrigðis 2024.
Sú gleðilega frétt barst okkur í stjórn Vinaskákfélagsins fyrir nokkrum dögum að við hefðum fengið styrk frá Geðsjóði – Styrktarsjóði Geðheilbrigðis nú í ár. Í dag 13 nóvember 2024, fórum við Róbert Lagerman til að skrifa undir samning vegna styrksins á veitingastaðnum Nauthóli. Styrkurinn sem við fáum fer í að fjármagna 3 skákmót Vinaskákfélagsins. Skákmótin eru þessi: Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið. ...
Lesa »Ræða forseta Vinaskákfélagsins á Minningaskákmóti um Hrafn Jökulsson 1 nóv.-24.
Kæru ættingjar Hrafns og aðrir gestir. Ég bíð ykkur alla velkomna á þetta minningar skákmót um Hrafn Jökulsson. Við erum að halda þetta Minningarskákmót öðru sinni, en í fyrra var mótið allt hið glæsilegasta. Á það mót komu 62 skákmenn sem er met hjá Vinaskákfélaginu. Í ár verður mótið nokkuð með svipuðu takti og í fyrra, en við erum t.d. ...
Lesa »Vignir Vatnar vann Minningarskákmótið um Hrafn Jökulsson 2024.
Vinaskákfélagið hélt nú öðru sinni glæsilegt Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson á afmælisdegi hans 1 nóvember 2024. 29 skákmenn mættu og þar af 2 stórmeistara (Vignir Vatnar og Jóhann Hjartarsson). Skákmótið var haldið á Aflagranda 40, en þar hafði Hrafn heitinn verið með bókaupplestur síðustu árin sem hann lifði. Húsið opnaði með popp og pragt klukkan 15:00, þar sem gestir streymdu ...
Lesa »Glæsilegt Minningarskákmót Hrafns Jökulssonar 1 nóv. 2024.
Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson 1 nóvember á Aflagranda 40. Húsið opnar kl. 15:00, þar sem gestir koma og gæða sér á veitingum. Einnig munu margir af ættingjum Hrafns koma. Á mótinu verður afhent fyrsta styrkúthlutunin úr Minningarsjóði Hrafns Jökulssyni. Áfram verður áritað nöfn ættingja og skákmanna á skákborð sem var byrjað á í fyrra. Settur verður ...
Lesa »Vignir Vatnar sigraði á Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótinu 2024.
Eitt af skemmtilegustu skámótum ársins var haldið fimmtudaginn 17 október, en þá var Alþjóða geðheilbrigðis skákmótið haldið með pomp og prakt. 24 skákmenn og konur mættu til leiks og var hart barist. Vinaskákfélagið hefur skipulagt þetta skákmót undanfarin 18 ár, ásamt Taflfélag Reykjavíkur. Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið er haldið í tilefni þess að 10 október ár hvert er haldin Alþjóðlegi Geðheilbrigðis ...
Lesa »Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2024.
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 18 ár, og í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur. Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 17. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30. Húsið opnar klukkan 18:30. Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu! Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek. Skákstjórn ...
Lesa »