Ég Hörður Jónasson legg þessar lagabreytingar fyrir Aðalfund Vinaskákfélagsins 5 maí. Tillaga forseta, Herði Jónassyni á breytingum á lögum Vinaskákfélagsins. Kosið milli 2 tillaga: 5 greinin er svona í dag: 5 grein. Nýir félagar sem vilja koma inn í Vinaskákfélagið, þurfa að kunna mannganginn í skák og hafa áhuga á að tefla. Nýir félagar hafa ekki atkvæðisrétt á almennum félagsfundum ...
Lesa »Forsíða
Árshátíð Vinaskákfélagsins 2026
Staður: Hereford steikhús. Dagsetning og klukka: 21 apríl, kl. 19:00. Forréttur: Húmarsúpa að hætti Hereford Steikhús. Aðalréttur: 200 gr. nautalund borin fram með steiktu grænmeti og bökuðum kartöflum. Desert: Súkkulaðikaka með ís og berjum. Kostnaður: 10.900 kr. Afsláttur Vinaskak: 4.000 kr. Samtals kostnaður: 6.900 kr. Ath. drykkir eru ekki innifaldir. Kveðja, stjórn Vinaskákfélagsins. Skráning hér fyrir neðan.
Lesa »Aðalfundur Vinaskákfélagsins 2026.
Aðalfundur Vinaskákfélagsins verður haldinn þriðjudaginn 5 maí 2026 á Aflagranda 40, klukkan 19:00. Á stjórnarfundi 17 mars 2026, var ákveðið að færa lið 6 Lagabreytingar framar og mun hann færast frá lið 6 til lið 4. Aðrir liðir breytast ekki. Dagskrá aðalfundar er sem hér segir: 1. Forseti setur fundinn. 2. Kosning fundarstjóra. 3. Kosning ritara. 4. Lagabreytingar. 5. Skýrsla ...
Lesa »Róbert Lagerman sigraði á Páskaskákmóti Vinaskákfélagsins 2026.
Í dag 23 mars 2026 var haldið glæsilegt Páskaskákmót Vinaskákfélagsins í Vin Dagsetur. Teflar voru 6 umferðir með 7 mín., á klukkunni. 14 manns mættu til leiks. Sigurlaug lék fyrsta leikinn hjá Ólafi Thorssyni gegn Erlingi Arnarsyni. Róbert Lagerman sigraði mótið með 5,5 vinninga. 2 sæti varð Tómas Björnsson með 5 vinninga. 3 sæti varð Aðalsteinn Thorarensen með 4 vinninga. ...
Lesa »Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 23 mars 2026.
Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 23 mars kl. 13:00. Eins og ávalt hjá Vinaskákfélaginu verða góðir vinningar í boði. Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri er Hörður Jónasson Í hléi verður hægt að gæða sér á kaffi og kökum. Tefldar verða 6 umferðir með 7 mín á klukkunni. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. Verðlaun ...
Lesa »Róbert Lagerman vann Friðriksskákmótið 2026.
Vinaskákfélagið hélt glæsilegt skákmót á fæðingardag Friðriks Ólafssonar stórmeistara 26 janúar. Þetta er í 3ja sinn sem við höldum þetta mót. Mótið var haldið í Vin Dagsetur á Hverfisgötu 47. Glæsilegur farandbikar “Friðriksbikarinn”, fær sá sem vinnur nafn sitt skráð á hann. Þetta skákmót hefur verið ákveðið að halda árlega héðan í frá á afmælisdegi Friðriks 26 janúar eða í ...
Lesa »Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins 2026
Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót á fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið mánudaginn 26 janúar klukkan 13:00 í Vin Dagsetur á Hverfisgötu 47. Vinaskákfélagið ætlar að halda þetta mót árlega og verður stórglæsilegur Farandbikar sem heitir “Friðriksbikarinn” sem sá sem vinnur fær nafn sitt skráð á hann. Þetta er í þriðja sinn sem við höldum þetta mót. Tefldar verða 6 ...
Lesa »Gleðileg skákjól.
Vinaskákfélagið óskar öllum gleðilegra jóla og farsælla komandi skákárs! Allt það helsta sem Vinaskákfélagið hefur gert á árinu þ.e. skákmót og viðburðir er hægt að sjá betur í Gáttinni: Gáttin Kveðja frá stjórn Vinaskákfélagsins.
Lesa »
Vinaskákfélagið Við erum ein fjölskylda.