Skákhof Vinaskákfélagsins í Vin

Hörður Jónasson endurkjörinn Forseti Vinaskákfélagsins á aðalfundi félagsins 5 maí 2026.

Aðalfundur Vinaskákfélagsins var haldinn þriðjudaginn 5 maí 2026 á Aflagranda 40.

Á aðalfundi félagsins sem stóð frá klukkan 19-20:45 var Hörður Jónasson endurkjörinn forseti félagsins næstu 2 árin, eða til 2028.

Skýrsla stjórnar og Ársreikningar félagsins voru samþykktir.

Sjá Ársreikningana á heimasíðunni: Ársreikningur Vinaskákfélagsins 2025

Sjá einnig skýringar við Ársreikningana: Skýringar vegna Ársreikninga 2025

Sjá Skýrslu stjórnar hér: Skýrsla stjórnar Vinaskákfélagsins 2026

4 lagabreytingar voru samþykktar á fundinum eða 5 gr., 7 gr., 13a gr., og 19 gr. Liður 2.

Sjá lög Vinaskákfélagsins eftir breytingar: https://www.vinaskak.is/um-felagid/log-vinaskakfelagsins/

Í kosningu stjórnar, þá var virkjuð 13a greinin, þannig að núna eru 3 í aðalstjórn og 1 varamaður:

Hörður Jónasson var kjörinn forseti félagsins til 2 ára.

Varaforseti var kjörinn Tómas Ponzi til eins árs.

Gjaldkeri og Ritari kjörinn Róbert Lagerman til eins árs.

Varamaður var kjörinn Jóhann Valdimarsson til eins árs.

Ákveðið var að fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar verði haldinn í 26 maí.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti.

Ps. Það gleymist að taka mynd af nýju stjórninni.

x

Við mælum með

Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins 2026

Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót á fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið mánudaginn 26 janúar ...