Góðan daginn félagar.
Þessi skýrsla stjórnar nær frá aðalfundi 13 maí 2025 til aðalfundar 5 maí 2026.
Aðalfundur félagsins var haldin 13 maí 2025 Í Vin Dagsetur.
Ekki þurfti að kjósa Forseta félagsin, en Hörður Jónasson er forseti Vinaskákfélagsins þar til næst verður kosið um forseta á aðalfundi 2026.
Tómas Ponzi endurkjörinn sem varaforseti og Róbert Lagerman var líka endurkjörinn sem gjaldkeri. Kjartan Ingvarsson kemur nýr inn sem Ritari félagsins.
Sigurjón Egilsson kom inn sem meðstjórnandi. Varmenn voru kosnir Jóhann Valdimarsson sem 1 varamaður og Björn Agnarsson sem 2 varamaður.
Verndari félagsins er Halldóra Pálsdóttir forstöðukona Vinjar.
Lagabreytingar.
Samþykkt var á aðalfundinum þessar lagabreytingar:
19 gr. Þar sem samþykkt var að stofnfé mundi hækka úr 100.000 kr. í 500.000 kr., og sett í sérstakan reikning sem yrði kallaður „Höfuðstólsreikningur Minningarsjóðs“.
20 gr. Þar sem úthlutun á styrkveitingum skal fara fram eigi síður en 15 september og að ef ekki er nógur peningur í sjóðnum, þá geti stjórn Minningarsjóðsins ákveðið að ekki verði auglýst eftir umsóknum um styrki það árið.
7 gr. Að í stað þess að hafa 2 bankareikninga var ákveðið að Vinaskákfélagið skildi hafa 3 reikninga þ.e. Rekstur Vinaskákfélagsins (sem er aðalreikningurinn), Rekstur Minningarsjóðs Hrafns Jökulssonar og Höfuðstólsreikningur Minningarsjóðs.
13a gr. Bráðabirgða grein til eins árs í senn.
Ef ekki næst að manna stjórnarmenn og varamenn á aðalfundi Vinaskákfélagsins geta fundarmenn samþykkt með ¾ atkvæðum að hafa aðeins 3 stjórnarmenn og 1 til 2 varamenn það tímabil. Þá verður kosið um Forseta, Varaforseta og Gjaldkera/Ritari sem er sami maðurinn og 1 til 2 varamenn. Annað sem er í 13 gr., gildir.
Fyrsti stjórnarfundur eftir aðalfund.
Fyrsti stjórnarfundur Vinaskákfélagsins eftir aðalfund var 3 júní 2025.
Kosið var í nefndir: Mótanefnd, Styrkja – og Fjáröflunarnefnd, Bókasafnsnefnd og Almannatengslanefnd.
Einnig var ákveðið hvaða styrki skildi vera sótt um: Geðsjóður, Reykjavíkurborg, Landsbankinn, Lýðheilsusjóð (það varð svo ekkert úr því) og að lokum í ÖBÍ. (Fer betur yfir þetta í liðnum Styrkir. Svo var ákveðið hvaða skákmót við mundum vera með: Það var samþykkt það sem kom fram á Minningarsjóðs fundi 27 maí 2025. Þetta voru: Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák, Crazy Culture skákmótið, Alþóðlega Geðheilbrigðis skákmótið, Íslandsmót skákfélaga (en það var síðan fellt niður og var Vinaskákfélagið ekki með í því. Kem betur að því í dálknum um skákmót), Jólaskákmót Vinaskákfélagsins, Jólamótið á Kleppi, Nýársskákmótið (það var síðan fellt niður), Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins og að lokum Páskaskákmót Vinaskákfélagsins.
Ákveðið var að Þátttökugjöld yrðu á 3 skákmótum þ.e. Friðriksskákmótinu, Meistaramótinu og Minningarskákmóti Hrafns Jökulssonar. Ákveðið var að það yrði 1.500 kr., en frítt fyrir unglinga yngri en 16 ára og einnig fyrir meðlimi Vinaskákfélagsins.
Á stjórnarfundi 14 janúar 2026 voru samþykktar 2 breytingar Á ársreikningi Vinaskákfélagsins þ.e. að setja allan kostnað sem tilheyrir hverju skákmóti fyrir sig og sett voru inn Lykilnúmer á allar færslur.
Minningarsjóður Hrafns Jökulssonar.
Á fyrsta minningarsjóðs fundi 27 maí 2025, þá ákveðum stjórnarmenn Hörður, Róbert og Tómas Ponzi að auglýsa ekki um umsóknir um styrki frá 1 júlí til 1 september 2025, þar sem ekki væri nógu mikill peningur væri í sjóðnum. Þetta væri gert samkvæmt lið 4 í 20 gr., laga Vinaskákfélagsins.
Ennfremur var ákveðið hver verðlaun yrðu á Minningarskákmóti um Hrafn Jökulssonar.
Minningarskákmótið sem átti að vera Minningarskákmót 60 ára afmælis mót Hrafns varð heldur betur vandræðalegt. Upphaflega átti mótið að vera 1 nóvember, en þá var salurinn upptekinn á Aflagranda og næst var ákveðið að hafa mótið þá 2 nóvember á sunnudegi og vorum við byrjaðir að auglýsa mótið þann dag. Þá kom í ljós að KR skákfélag væri með æfingar alla sunnudaga, svo enn þurftu að finna nýjan dag fyrir mótið. Logs var mótið haldið 22 nóvember. (Betur verður sagt frá mótinu í skákmóta dálkinum).
Styrkir sem félagið fékk:
Eins og áður hefur komið fram, þá var á stjórnarfundi 3 júní 2025 ákveðið að sækja um þessa styrki: Geðsjóð (sem Geðhjálp sér um), Samfélagsstyrki hjá Landsbankanum og hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Í umsókninni til Geðsjóðs var talað um að nota styrkinn: Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins, Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið og Jólamótið á Kleppi. Einnig Skákmaður ársins og líka hjá Athvörfum, Búsetukjarna og Sambýla.
Sótt var um 275.000 kr., en fengum 250.000 kr. Þann 10 nóvember sl. samþykkti geðsjóður styrkinn til okkar, en Hörður forseti og Tómas Ponzi varaforseti fóru á Kjarvalsstaðir til að taka á móti honum.
Því miður fengum við ekki styrk frá Landsbankanum sem við sóttum um 250.000 kr.
Við fengum líka styrk frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar í febrúar 2026 eða 300.000 kr., sem var borgað í tvennu lagi eða 150.000 kr., í mars og sama verður í september 2026. Róbert Lagerman sótti styrkinn, en þá var Hörður forseti erlendis.
Ákveðið var að 1/3 af styrknum færi í Minningarsjóð um Hrafn Jökulsson.
Sótt var um styrk til Öryrkjabandlagsins í febrúar 2026 um 350.000 kr., en ekki er búið að úthluta styrki fyrr en í fyrsta lagi í maí 2026.
Talað var líka um að sækja um styrk til Lýðheilsusjóðs en ekkert varð af því.
Róbert og Hörður sóttu um rúmlega 1 milljón í styrk til ferðar í Nuuk á Grænlandi í Nord Vest Höfuðborgarsjóðinn. Þann 17apríl fengum við styrk frá þeim að upphæð DKK 25.000 sem er um 475.000 kr. Einnig sóttum við um 1 milljón í Grænlandssjóð en ekki er komið svar frá þeim.
Einnig fengum við styrki frá einstaklingum og þá helst í Minningarsjóð um Hrafn Jökulsson og fengu menn þá barmerki í staðinn.
Gjafir eða kaup Vinaskákfélagsins.
Engar sérstakar gjafir fékk Vinaskákfélagið frá maí 2025 til maí 2026. Þó má segja að þessi svokölluðu árgjöld sem Skáksambandið setur á skákmenn að hluti af þeim kemur til baka til skákfélaga. Fengum við því 18.000 kr., úr þeim potti.
Keypt var bók eftir Jón Viktor um Sikileyjarvörn og einnig keyptar 3 bækur frá honum sem notaðar voru í verðlaun á skákmótum. Svo voru keyptar bækur eftir Friðrik Ólafsson í verðlaun á Friðriksskákmóti Vinaskákfélagsins sem var haldið á afmælisdegi hans 26 janúar.
Viðburðir:
Undanfarin ár 2021-2026, höfum við í Vinaskákfélaginu heimsótt athvörf og Búsetukjarna til að gefa töfl og skákklukkur. Á Jólaskákmótinu á Kleppi voru gefin 2 töfl og skákklukka til Athvarfsins Starengi 6 í Grafarvogi. Þetta var 10 gjöf félagsins til Búsetukjarna og Athvarfa. Sjá frétt um þetta: Vinaskákfélagið gefur töfl og skákklukku til Starengi 6
Þann 8 desember 2025 afhentum við á Aflagranda 40, Skákmenn ársins 2025 hjá Vinaskákfélaginu en það voru Trausti Björnsson, Höskuldur Dungal og Ragna Briem. En þau hafa komið á Aflagranda 40 og teflt við forseta félagsins alla mánudaga. Hægt að sjá frétt um það hér: Skákmenn ársins hjá Vinaskákfélaginu 2025
Þess má geta að Höskuldur Dungal lést 17 mars 2026 og var jarðsungin frá Seljakirkju 1 apríl 2026.
7 júlí á „Meistaramóti Vinaskákfélagsins í hraðskák“, var okkur í Vinaskákfélaginu afhent glæsileg viðurkenning frá Fide, en það var „FIDE Outstanding Contribution to Social chess“. Sjá frétt um það á heimasíðunni: Vinaskákfélagið fær viðurkenningu frá FIDE
Á stjórnarfundi 14 janúar 2026 var samþykkt að veita Róbert Lagerman styrk að upphæð 75.000 kr. úr Minningarsjóði Hrafns, vegna Minningarskákmóts í Nuuk á Grænlandi sem áætlað verði haldið í febrúar 2026. Uppfært: verður haldið í apríl mánuð.
Árshátíðin Vinaskákfélagsins var haldin þriðjudaginn 21 apríl á Hereford steikhús. Glæsilegur 3 rétta matseðill var á boðstólum. 5 manns mættu og allir skemmtu sér vel. Tekin var hópmynd af þessu tilefni.
Skákmót:
Fyrsta skámótið okkar á þessu tímabilið var hið árlega skákmót „Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák“, sem var haldið mánudaginn 7 júlí í Vin Dagsetur. Eins og áður var teflt bæði úti og inni. Á skákmótinu fengum við þessa glæsilegu viðurkenningu frá Fide eins og áður hefur komið fram. Sigurvegari var Vignir Vatnar vann mótið með fullu húsi. Sjá frétt um mótið: Vignir Vatnar vann Sumarmót Vinaskákfélagsins 2025
Næst var það Crazy Culture skákmótið en var haldið mánudaginn 18 ágúst, kl: 16, í samfélagshúsinu Aflagranda 40. Þetta var í 6ja sinn sem mótið er haldið.
Róbert Lagerman sigraði mótið, en hér er frétt um mótið: Róbert Lagerman vann Crazy Culture skákmótið 2025
Eitt af stóru skákmótunum sem Vinaskákfélagið er með er Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið, en það er haldið í kringum 10 október sem er alþjóðlegi dagur geðheilbrigðis. Í ár var mótið haldið 9 október í samstarfi við TR.
Mótið var hið glæsilegasta, en 25 skákmenn og konur mættu til leiks og var hart barist. Þetta mót var núna haldið í 19 sinn.
Sigurvegari varð Magnús P. Örnólfsson en hann fékk 9 vinninga af 9 möguleikum.
Fullt af verðlaunum var á mótinu ásamt bókum frá Skruddu bókaforlaginu.
Frétt um mótið: Magnús P. Örnólfsson sigraði á Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótinu 2025
Næst var komið að hinu glæsilega skákmóti sem Vinaskákfélagið hélt en það var Minningarskákmótið um Hrafn Jökulsson, en það var haldið laugardaginn 22 nóvember á Aflagranda 40. (áður komið fram af hverju þessi seinkun var á mótinu).
Í ár var mótið með glæsilegra hætti, þar sem Hrafn hefði orðið 60 ára ef hann hefði lifað. Það er alltaf mikill undirbúningur var fyrir þetta mót. Sett var upp minningarveggur með myndum af Hrafni eins og í fyrra, ná í verðlaun og veitingar sem voru glæsilegar.
Alls mættu 23 skákmenn á mótið. Áfram voru Barmerki handa þeim sem vildu styrkja Minningarsjóðinn. Ennfremur voru innheimt þátttökugjöld á mótinu. Vignir Vatnar vann mótið og núna í annað skiptið í röð. Sjá frétt um mótið: Vignir Vatnar vann Minningarskákmótið um Hrafn Jökulsson 2025
Í desember var hið hefðbundna Jólaskákmótið okkar í Vin sem Róbert Lagerman vann og Jólaskákmótið á Kleppi. Það er eitt af skemmtilegustu skákmótum ársins hjá Vinaskákfélaginu. Þar er teflt við áhugamenn um skák frá Búsetukjörnum, Athvörfum og Geðdeildum og er glatt á hjalla. Mikið af verðlaunum, bókum og kaffi og kökur er á borðstólum. Hluti af styrknum frá Geðhjálp fór í þetta mót.
Forseti skrifað smá frétt um mótið: Gleðin við völd í Jólaskákmótinu á Kleppi 2025
Sjá einnig frétt af Jólaskákmótinu okkar í Vin: Róbert Lagerman sigraði á Jólaskákmóti Vinaskákfélagsins 2025
Nýársskákmótinu var frestað, en Páskaskákmótið okkar var svo haldið í Vin, mánudaginn 23 mars sem Róbert Lagerman vann. Sjá frétt um mótið: Róbert Lagerman sigraði á Páskaskákmóti Vinaskákfélagsins 2026
Ekki má gleyma Friðriksskákmóti Vinaskákfélagsins 2026.
Það var haldið í Vin Dagsetur mánudaginn 26 janúar á fæðingardag Friðriks.
Eins og áður hefur komið fram þá var innheimt þátttökugjald á mótinu en það var einn sem greiddi það. Glæsilegur Farandbikar er sem sá sem vinnu fær nafn sitt áritað á.
Þetta mót verður haldið árlega. Sigurvegari varð Róbert Lagerman.
Sjá frétt um mótið: Róbert Lagerman vann Friðriksskákmótið 2026
Íslandsmót Skákfélaga:
Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund þann 3 júní 2025 var ákveðið að hafa bara eina sveit og var Hörður Jónasson kjörinn liðstjóri og Róbert Lagerman til vara.
Um haustið 2025 kom svo í ljós vandkvæði með að geta haldið út liði á mótið, þar sem Róbert Lagerman hafði ákveðið að tefla fyrir annað félag. Hörður forseti ræddi við stjórnarmenn, ásamt Árna H. Kristjánsson þá tillögu að Vinaskákfélagið mundi hætta við þátttöku í mótinu. Stjórnarmenn tóku þessu vel og var það ákveðið á Stjórnargrúbbunni að Vinaskákfélagið tæki ekki þátt í Íslandsmóti Skákfélaga þetta tímabil. Í kjölfarið fóru nokkrir meðlimi og tefldu fyrir annað félag t.d. Árni, Tómas Ponzi og Kjartan Ingvarsson (seinni hluta).
Listi yfir skákmót Vinaskákfélagsins tímabilið maí 2025 til maí 2026:
Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 7 júlí
Crazy Culture skákmótið 18 ágúst
Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið 9 október.
Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson 22 nóvember.
Jólaskákmót Vinaskákfélagsins 1 desember
Jólaskákmótið á Kleppi 10 desember.
Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins 26 janúar 2026
Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 23 mars 2026.
Heimasíða félagsins:
Á stjórnarfundi 14 janúar ræddi forseti um sérstaka uppfærslu sem heitir PHP öryggisuppfærsla. Við erum með útgáfu 7,3 en nýjast uppfærsla var 8,1. Því miður var ekki hægt að fara í nýjust uppfærslu og var ákveðið á fundinum að aðhafast ekkert á meðan vefsíðan væri virk.
Ekkert nýtt á vefsíðunni, nema þegar ársreikningurinn kemur út með lykilnúmerum og kostnaður sér merktur á hvert skákmót, síðan verða skýringar með henni á sér síðu, einnig Skýrsla stjórnar.
Heimasíða félagsins er: www.vinaskak.is
Kveðja, Hörður Jónasson
Forseti Vinaskákfélagsins
Vinaskákfélagið Við erum ein fjölskylda.






