Skákhof Vinaskákfélagsins í Vin.

Lagabreytingar fyrir Aðalfund Vinaskákfélagsins 2026

Ég Hörður Jónasson legg þessar lagabreytingar fyrir Aðalfund Vinaskákfélagsins 5 maí.

Tillaga forseta, Herði Jónassyni á breytingum á lögum Vinaskákfélagsins.

5 greinin er svona í dag:

5 grein.

Nýir félagar sem vilja koma inn í Vinaskákfélagið, þurfa að kunna mannganginn í skák og hafa áhuga á að tefla. Nýir félagar hafa ekki atkvæðisrétt á almennum félagsfundum eða aðalfundum fyrr en þeir hafa verið að minnsta kosti sex mánuði í félaginu. Ef hinn nýi félagi er kosinn í stjórn innan þess tíma, fær hann fullan atkvæðisrétt.

Tillaga forseta:

5 grein.

Nýir félagar sem vilja koma inn í Vinaskákfélagið, þurfa að kunna mannganginn í skák og hafa áhuga á að tefla.

Taka burt 2 og 3 setningu.

Grein 7.

Greinin er svona í dag:
 
7. grein.
Vinaskákfélagið skal vera með 3 bankareikninga. Einn almennan rekstrarreikning félagsins og 2 reikninga um Minningarsjóð Hrafns Jökulssonar. Annar af Minningarsjóðs reikningnum er notaður í úthlutun á styrkjum eða verkefni á vegum Vinaskákfélagsins, en hinn er fastur reikningur að upphæð 500.000 kr., og má bara taka úr honum vexti og nota. Samanber liður 2 á 19 grein.
 
Ekkert árgjald er, en aftur á móti geta meðlimir styrkt félagið með frjálsum framlögum á heimasíðu þess undir linknum „Styrktarlína“.
 
Tillaga forseta:
7. grein.
Vinaskákfélagið skal vera með 3 bankareikninga. Einn almennan rekstrarreikning félagsins og 2 reikninga um Minningarsjóð Hrafns Jökulssonar. Annar af Minningarsjóðs reikningnum er notaður í úthlutun á styrkjum eða verkefni á vegum Vinaskákfélagsins, en hinn er fastur reikningur að lágmarki 400.000 kr., og má bara taka úr honum vexti og nota. Samanber liður 2 á 19 grein.
 
Ekkert árgjald er, en aftur á móti geta meðlimir styrkt félagið með frjálsum framlögum á heimasíðu þess undir linknum „Styrktarlína“.
 

Tillaga forseta að breytingu á 13a. Í stað eins árs í senn, að hafa þessa grein alltaf inni, ef á þarf að halda.

13a. grein.

Ef ekki næst að manna stjórnarmenn og varamenn á aðalfundi Vinaskákfélagsins, geta fundarmenn samþykkt með ¾ atkvæðum að hafa aðeins 3 stjórnarmenn og 1 til 2 varamenn það tímabil. Þá verður kosið um Forseta, Varaforseta og Gjaldkera / Ritara sem er sami maðurinn og 1 til 2 varamenn. Annað sem er í 13 gr., gildir.

Tillaga forseta á breytingu á 19 gr. 2 liður þ.e. breyting á Stofnfé. 

Lagagreinin er svona í dag: 

  1. grein.  

Reglur um Minningarsjóð um Hrafn Jökulsson.

  1. Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Hrafns Jökulssonar
  2. Stofnfé sjóðsins er 500.000 kr.Stofnfé skal vera geymt á sér reikningi og má sjóðsstjórnin ekki ráðstafa þeirri upphæð, þó má sjóðsstjórnin nota vexti sem kemur af þessari upphæð. Breyting á þessari upphæð má aðeins gera á Aðalfundi Vinaskákfélagsins.
  3. Tekjur sjóðsins eru vaxtatekjur af stofnfé og öðru fé sem sjóðnum kann að áskotnast, gjafir og áheit sem sjóðnum kunna að berast, og tekjur sem stjórn sjóðsins kann að afla honum á annan hátt.
  4. Tilgangur sjóðsins er að styrkja Skákverkefni í nafni Hrafn Jökulssonar, s.s. skákmót, skákkennslu, skákferðir.
  5. Stjórn sjóðsins skipa þrír aðilar. Stjórn sjóðsins skiptir með sér verkum. Kjörtímabil stjórnar minningarsjóðsins er tvö ár. Einfaldur meirihluti ræður ákvörðunum innan sjóðsstjórnar.
  6. Stjórn sjóðsins ber að upplýsa stjórn Vinaskákfélagsins um upphæð hverju sinni sem greitt er út af sjóðnum. Þau verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni, ber að tilkynna til stjórnar Vinaskákfélagsins.
  7. Reikningar sjóðsins skulu birtir árlega á aðalfundi Vinaskákfélagsins.
  8. Reikningur sjóðsins er í umsjá Vinaskákfélagsins.

Breytingin er svohljóðandi á lið 2. 

Að Stofnfé sjóðsins verði að lágmarki 400.000 kr. Stofnfé skal vera geymt á sér reikningi og má sjóðsstjórnin ekki ráðstafa þeirri upphæð, þó má sjóðsstjórnin nota vexti sem kemur af þessari upphæð. Breyting á þessari upphæð má aðeins gera á Aðalfundi Vinaskákfélagsins.

Kveðja, Hörður Jónasson

Forseti Vinaskákfélagsins

x

Við mælum með

Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins 2026

Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót á fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið mánudaginn 26 janúar ...