Mynd af afhendingu í Klúbbnum Geysir

Heimsókn Vinaskákfélagsins í Klúbbinn Geysir 2024.

Vinaskákfélagið heimsótti í dag 12 apríl 2024 Klúbbinn Geysir og kom færandi hendi með töfl, skákbók og skákklukku að gjöf. Þetta var níunda heimsókn félagsins.

Tekið var vel á móti Herði Jónassyni forseta Vinaskákfélagsins.

Sigurður Guðmundsson og aðrir gestir í Klúbbnum Geysir tóku á móti gjöfinni.

Ástæða þess að Vinaskákfélagið ákveður að gefa Búsetukjörnum, geðdeildum og Athvörfum, töfl, skákklukkur og skákbækur er til að efla skáklíf meðal fólks með geðraskanir og fá það til að vera í meiri félagskap við hvert annað. Skák er góð íþrótt til að fá fólk til að einbeita sér.

Sumarið 2020 samdi Vinaskákfélagið við Skáksambandið að það gæfi skáksett og skákklukkur í þetta verkefni og vill Vinaskákfélagið þakka þeim kærlega fyrir þeirra þátt í þessu.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...