Stjórn Vinaskákfélagsins 4 maí 2017

Aðalfundur Vinaskákfélagsins haldin þann 4 maí 2017.

Aðalfundur Vinaskákfélagsins var haldin þann 4 maí 2017. Öll almenn aðalfundastörf voru afgreidd, eins og skýrsla stjórnar, Uppgjör reikninga félagsins og lagabreytingar.

Sjálfkjörið var í flest embætti en þó dró einn varamaður sig til baka þegar áhugi kom frá öðrum í það embætti.

Hér er hin nýja stjórn:

Forseti: Róbert Lagerman

Varaforseti: Hörður Jónasson

Gjaldkeri: Héðinn Briem

Ritari: Hjálmar Sigurvaldason

Meðstjórnandi: Ingi Tandri Traustason

Varamaður 1: Aðalsteinn Thorarensen

Varamaður 2: Þorvaldur Ingveldarson

Verndari félagsins er sem fyrr Hrafn Jökulsson.

Mynd frá Aðalfundi 4 maí 2017

Skýrsla stjórnar á aðalfundi félagsins 4 maí 2017.

Góðan daginn félagar.

Margt og mikið hefur gerst í Vinaskákfélaginu frá því að síðasti aðalfundur var haustið 2016.

Ný stjórn var kjörinn og fjölgað í 5 stjórnarmeðlimi og 2 varamenn. Í byrjun voru margar hindranir í vegi Vinaskákfélagsins. Það fyrsta var að koma nýju stjórninni og breytingu á lögheimili í gegnum skattayfirvöldum. Þegar það tókst, tók ekki betra við þegar átti að stofna reikning fyrir félagið. Það tók tímann sinn og mörg eyðublöð þurfti að fylla út. Þetta tókst þó stuttu fyrir jól.

En að skákmótum félagsins.

Fyrsta mótið var Íslandsmót Skákfélaga sem var haldið helgina 30 sept – 2 okt. Það var fyrri hluti, en seinni hluti var haldið 3-4 mars 2017. Árangur okkar þar sem við vorum með þrjár sveitir voru eftirfarandi. A sveitin tefldi í 2 deild og hlaut 21 vinning og 5 sætið af 8 sveitum. B sveitin tefldi í 3 deild og hlaut 7 stig og 20 vinninga og 6 sætið af 14 sveitum. C sveitin tefldi í 4 deild og hlaut 5 stig og 15,5 vinninga og lenti í 12 sæti af 14 sveitum. Aðalástæðan fyrir hvað C sveitin gekk ílla í seinni hlutanum voru t.d. vegna þess að það vantaði skákmenn eða skákmenn voru færðir upp í A og B sveitirnar.

Næsta mót var í samvinnu við TR, vegna Alþjóða geðheilbrigðis dagsins sem er 10 október. Vignir Vatnar vann mótið með 6,5 vinninga, en efstur Vinaskákfélagsmanna var Róbert Lagerman í 5-6 sæti.

Haustmót Vinaskákfélagsins var svo haldin í Vin þann 7 nóvember 2016. Sá sem vann var Vignir Vatnar, en Róbert Lagerman í 2 sæti og Hrafn Jökulsson í því 3ja.

Svo erum við komnir í Jólamánuðinn og var Jólaskákmót Vinaskákfélagsins haldið þann 5 des. Í Vin. Röð efstu manna var þannig að Róbert Lagerman í fyrsta, Ingi Tandri í öðru og Hrafn Jökulsson í því þriðja.

Eitt af því sem er haldið árlega í jólamánuðinum er Kleppsmótið og var engin undantekning á því þó Víkingaklúbburinn félli úr skaftinu þetta árið.

Hrafn Jökulsson og Hrókurinn voru með kaffi og dýrindis meðlæti fyrir keppendur.

Þetta er það mót sem við félagar í Vinaskákfélaginu erum hvað stoltastir með að halda. Þarna koma saman áhugamenn um skák frá hinum ýmsum athvörfum og geðdeildum á Reykjavíkursvæðinu. Mótið er þannig stillt upp að það eru 3 skákmenn í liði og ef það vantar í lið, þá er því bjargað strax með því að manni er lánað frá öðrum liðum. Úrslit er í raun ekki aðal markmiðið, heldur að koma saman og skemmta sér. Sigurvegarar voru þó lið frá Vinaskákfélaginu, reyndar 2 lið og í þriðja sæti var svo lið frá SEG lið frá Kleppi.

Þó aðalmarkmiðið sé að halda skákmót var ýmislegt annað sem Vinaskákfélagið var að gera. Eitt af því var að koma í gang Hollvinasamtökunum sem er styrktar samtök fyrir Vinaskákfélagið. Sá sem hér talar Varaforsetinn átti svona mestan heiðurinn að búa þetta til og gera reglur í kringum þetta, þó ég sjálfur segi frá. Hollvina styrktarkerfið var svo prufukeyrt stuttu fyrir jól hjá félögum á spjallgrúbbunni á Facebook. Talandi um grúbbur eða hópa á facebook, þá heldur Vinaskákfélagið úti nokkrum grúbbum t.d. spjallgrúbbunni, stjórnargrúbbunni, Hollvinagrúbbunni og vefsíðugrúbbunni.

Þá erum við komnir á árið 2017. Það byrjar með því að undirbúningur hefst á að setja í loftið heimasíðu /vefsíðu fyrir Vinaskákfélagið. Um mánaðarmótin janúar – febrúar var hún komin í gagnið. Vefsíðan heitir vinaskak.is. Við í Vinaskákfélaginu viljum þakka sérstaklega Tómasi Veigar Sigurðarson fyrir frábæra þjónustu við gerð heimasíðunnar. Þar með kom stærsti draumur okkar félaga á þessu tímabili ásamt því að setja Hollvinasamtökin inn á vefsíðuna, enda var það aðalástæðan fyrir því að flýta gerð heimasíðunnar.

Vegna þessarra vinnu þá voru sumir félagar orðnir langeyðir eftir skákmóti, en stjórnin var þá með í mótun að halda Meistarmót Vinaskákfélagsins í atskák. Það var haldið frá 23 febrúar til 23 mars eða 3 kvöld á 3 mismunandi stöðum. Mótið sjálft tókst með ágætum, þó það væri frekar fámennt og sérstaklega frá félögum okkar.

Sigurvegari var Róbert Lagerman í öðru sæti var Vigfús Vigfússson og í þriðja sæti var Magnús Magnússon. Næsta mót (enda ætlum við að halda þetta mót árlega) verður skipulagt betra vegna reynslu þessa móts og verður það verkefni næsta mótanefndar að huga að því. Að lokum var svo haldið Páskamót Vinaskákfélagsins þann 3 apríl og sigurvegari var sem fyrr Róbert Lagerman og í öðru sæti Stefán Bergson og Loftur Baldvinson í því þriðja.

Takk fyrir, kveðja Varaforseti.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...