Vignir Vatnar sigraði á Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótinu 2021.

Eitt af skemmtilegustu skákmótum ársins var haldið fimmtudaginn 14 október, en þá var Alþjóða geðheilbrigðisskákmótið haldið með pomp og prakt. 30 skákmenn og konur mættu til leiks og var hart barist.

Vinaskákfélagið hefur skipulagt þetta skákmót undanfarin 15 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

Skákstjóri var Ríkharður Sveinsson frá TR.

Tefldar voru 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Sigurverandi var Vignir Vatnar Stefánsson sem kom sá og sigraði með fullu húsi eða 9 vinninga af 9 möguleikum.

Glæsileg verðlaun voru á mótinu og svo var Birnukaffi á sínum stað.

Vinaskákfélagið vill þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Róbert Lagerman forseti Vinaskákfélagsins hélt smá ræðu í upphafi móts og lék fyrsta leikinn fyrir Vignir Vatnar á móti Þórði Grímssyni.

Eftirfarandi skákmenn fengu verðlaun:

1. Sæti: Vignir Vatnar Stefánsson

2. Sæti: Gauti Páll Jónsson

3. Sæti: Örn Leo Jóhannsson

Konur: Lenka Ptacnikova

50 +: Róbert Lagerman

65 +: Harald Haraldsson

U16: Ingvar Wu Skarpheðinsson

Happdrætti: Adam Omarsson

Öll úrslit er hægt að sjá hér: Alþ.Geðheilbrigðis skákmótið

Stjórn Vinaskákfélagsins vill svo þakka öllum sem tóku þátt bæði skákstjóra og keppendum.

Kveðja, Hörður Jónasson varaforseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...