Jólaskákmót Vinaskákfélagsins 2020.

Hið árlega Jólaskákmót Vinaskákfélagsins fer fram næsta mánudag 7 desember.
Í þetta sinn fer mótið fram á netinu, en þetta er jafnframt sjötta skákmót Vinaskákfélagsins á chess.com núna í haust.

Jólaskákmótið mun fara fram á grúbbu Vinaskákfélagsins https://www.chess.com/club/vinaskakfelagid

og þurfa þátttakendur að skrá sig í grúbbuna til að vera með.

Mótið er 6 umferðir með 7 mínútur á klukkuna.

Klukkur verða ræstar stundvíslega 19:35.

Glæsileg verðlaun verða í boði og vonast stjórn Vinaskákfélagsins að skákmenn fjölmenni á þetta glæsilega skákmót.

Verðlaunin á Jólaskákmóti Vinaskákfélagsins 2020

  1. Gull peningur + bók + 5.000 kr.
  2. Silfur peningur + bók + 3.000 kr.
  3. Bronze peningur + bók + 2.000 kr.

Aukaverðlaun – happdrætti dregið í lok móts. Bók í verðlaun.

Linkur á mótið: https://www.chess.com/live#t=1823241

Allir velkomnir.

Mætið tímanlega.

Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Glatt á hjalla á Skemmtikvöldi Vinaskákfélagsins 2024.

Skemmtikvöld Vinaskákfélagsins var haldið þriðjudagskvöldið 23 janúar 2024. Dagskrá kvöldsins er glæsileg: Við fengum alþjóðlega ...