Tekið á móti gjöfinni frá vinaskákfélaginu

Heimsókn Vinaskákfélagsins á Batasmiðjuna á Kleppi 2022.

Vinaskákfélagið heimsótti í dag 12 desember 2022 Batasmiðjuna á Kleppi og kom færandi hendi með töfl og skákklukku að gjöf. Þetta var sjöunda heimsókn félagsins, en áformað er að heimsækja fleiri staði á næsta ári 2023.

Tekið var vel á móti félagsmönnum, þeim Herði Jónassyni og Róbert Lagerman.

Sigurður eða Diddi eins og hann er kallaður á Batasmiðjunni tók á móti gjöfinni.

Ástæða þess að Vinaskákfélagið ákveður að gefa Búsetukjörnum, geðdeildum og Athvörfum, töfl, skákklukkur og skákbækur er til að efla skáklíf meðal fólks með geðraskanir og fá það til að vera í meiri félagskap við hvert annað. Skák er góð íþrótt til að fá fólk til að einbeita sér.

Sumarið 2020 samdi Vinaskákfélagið við Skáksambandið að það gæfi skáksett og skákklukkur í þetta verkefni og vill Vinaskákfélagið þakka þeim kærlega fyrir þeirra þátt í þessu.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...