Friðrik Ólafsson að tefla á EM2015

Friðriksmót Vinaskákfélagsins 2024.

Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót í kringum fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið laugardaginn 27 janúar klukkan 14:00 á Aflagranda 40.

Vinaskákfélagið ætlar að halda þetta mót árlega og verður stórglæsilegur Farandbikar sem heitir “Friðriksbikarinn” sem sá sem vinnur fær nafn sitt skráð á hann.

Við eigum von á að Friðrik Ólafsson muni koma á mótið og jafnvel taka þátt.

Tefldar verða 7 umf., með 4 mín + 2 sek.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri verður Hörður Jónasson.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu.

Verðlaun á mótið:

  1. sæti: Farandbikar + Gull verðl.pen. + 25,000 kr.
  2. sæti: Silfur verðl.pen. + 15,000 kr.
  3. sæti. Bronse verðl.pen. 10,000 kr.

Kvennaverðlaun: Gull verðl.pen.

50 ára og eldri: Gull verðl.pen.

65 ára og eldri: Gull verðl.pen.

16 ára og yngri: Gull verðl.pen.

Starfsmenn á Aflagranda verða með kaffi, en Vinaskákfélagið kemur með 50 manna súkkulaðiköku. Stutt hlé verður svo eftir 4 umferðir svo skákmenn geti notið veitinganna sem best.

Allir velkomnir.

Hægt er að sjá hverjir hafi skráð sig hér:  Friðriksmót Vinaskákfélagsins 2024 

Einnig hægt að skrá sig á staðnum.

Mætið tímanlega.

Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

Skráning hér:

Friðriksmót Vinaskákfélagsins 2024

Friðriksmót Vinaskákfélagsins 2024

Nafn
Nafn
First
Last
x

Við mælum með

Vinaskákfélagið fékk styrk frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024.

Afhending á styrkjum frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024 var afhent í dag 18 mars 2024 í ...