Forseti Vinaskak leikur fyrsta leikinn fyrir Iðunn á móti Róberti 2022

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2023.

Logoið

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 17 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

 

 

 

Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 19. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30.

Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu!

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Hlé verður gert eftir 5 umf. Til að skákmenn geti fengið sér kaffi og vöflur.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Verðlaunapeningarnir.

Eftirfarandi verðlaun eru þessi:

  1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
  2. Sæti: Silfur peningur + bók.
  3. Sæti: Brons peningur + bók.
  4. Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
  5. 50 +: Gull peningur + bók.
  6. 65 +: Gull peningur + bók.
  7. U16: Gull peningur + bók.

1 Happadrætti, bók í verðlaun.

Skráning fer fram á staðnum.

Fólk er beðið um að koma snemma til að skrá sig.

Allir velkomnir!!

x

Við mælum með

Vinaskákfélagið fékk styrk frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024.

Afhending á styrkjum frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024 var afhent í dag 18 mars 2024 í ...