Vignir Vatnar vann Geðheilbrigðis mótið 2023

Vignir Vatnar sigraði á Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótinu 2023.

Eitt af skemmtilegustu skámótum ársins var haldið fimmtudaginn 19 október, en þá var Alþjóða geðheilbrigðis skákmótið haldið með pomp og prakt. 37 skákmenn og konur mættu til leiks og var hart barist.

Vinaskákfélagið hefur skipulagt þetta skákmót undanfarin 17 ár, og á síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið er haldið í tilefni þess að 10 október ár hvert er haldin Alþjóðlegi Geðheilbrigðis dagurinn.

Skákstjóri var Guðlaugur Gauti Þorgilsson frá TR.

Tefldar voru 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Sigurverandi var Vignir Vatnar Stefánsson en hann fékk 8,5 vinninga af 9 möguleikum.

Glæsileg verðlaun voru á mótinu og svo var Birnukaffi á sínum stað og vil ég þakka henni Birnu Halldórsdóttir fyrir að skákmenn og konur fóru ekki svangir heim.

Vinaskákfélagið vill þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Róbert Lagerman gjaldkeri Vinaskákfélagsins hélt smá ræðu í upphafi móts og lék fyrsta leikinn fyrir Mohammadhossein Ghasemi á móti Vignir Vatnar.

Róbert Lagerman leikur fyrsta leikinn

Eftirfarandi skákmenn fengu verðlaun:

  1. Sæti: Vignir Vatnar Stefánsson
  2. Sæti: Dagur Ragnarsson
  3. Sæti: Gauti Páll Jónsson

Konur: Gudrun Fanney Briem

50 +: Ríkharður Sveinsson

65 +: Pétur Jóhannesson

U16: Gudrun Fanney Briem  

Öll úrslit er hægt að sjá hér: https://chess-results.com/tnr835571.aspx?lan=1&art=1&rd=9&turdet=YES

Stjórn Vinaskákfélagsins vill svo þakka öllum sem tóku þátt bæði skákstjóra og keppendum.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Vinaskákfélagið fékk styrk frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024.

Afhending á styrkjum frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024 var afhent í dag 18 mars 2024 í ...