Forsíða

  • Sumarskákmót Vinaskákfélagsins í Vin

  • Félagar í A og B sveitum fagna úrslitum í Deildó

  • Stjórn Vinaskákfélagsins 2023

  • Forseti afhendir heiðursverðlaun til Róberts Lagermans

  • Minningaveggur um Hrafn Jökulsson á minningamóti hans

  • Jólaskákmótið á Kleppi 2023

Vinaskákfélagið heldur 4 skáka mótaröð í Nóvember 2022.

Það verður nóg að gera hjá Vinaskákfélaginu í Nóvember, en þá mun félagið halda 4 skáka mótaröð sem heita Vinaslagur Vinaskákfélagsins 1-4. Mótin verða haldin til skiptist á Aflagranda 40 og á Chess.com. Vinaslagur 1 verður haldið á Aflagranda 40, Laugardaginn 5 nóbvember kl. 14:00. Vinaslagur 2 verður haldið á Chess.com, mánudaginn 14 nóvember kl. 19:30. Vinaslagur 3 verður haldið ...

Lesa »

Ólafur Thorsson sigraði á Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótinu 2022.

Eitt af skemmtilegustu skámótum ársins var haldið fimmtudaginn 20 október, en þá var Alþjóða geðheilbrigðis skákmótið haldið með pomp og prakt. 24 skákmenn og konur mættu til leiks og var hart barist. Vinaskákfélagið hefur skipulagt þetta skákmót undanfarin 16 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur. Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið er haldið í tilefni þess að 10 ...

Lesa »

Úrslit frá Minningarmóti Hrafns Jökulssonar í Norður Turni í Smáralind.

Þessa grein skrifar Guðjón Heiðar Valgarðsson og honum til halds og traust við greinina voru Ólafur Thorsson og Hjálmar Sigurvaldason. XO skákmótið, minningarmót um Hrafn Jökulsson fór fram í Norðurturni Smáralindar miðvikudaginn 12.október síðastliðinn. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur viðburður fer fram þar en svæðið milli XO og Íslandsbanka er rúmt og bjart og hentar bersýnilega vel fyrir ...

Lesa »

Vinaskákfélagið fékk styrk frá Styrktarsjóði Geðheilbrigðis 2022.

Sú gleðilega frétt barst okkur í stjórn Vinaskákfélagsins fyrir nokkrum dögum að við hefðum fengið styrk frá Geðsjóði – Styrktarsjóði Geðheilbrigðis nú í ár. Geðjóðurinn stofnaði Geðhjálp 2021 og úthlutar úr sjóðnum árlega. Styrkurinn sem við fáum fer í að fjármagna 3 skákmót og að setja upp skákforrit á heimasíðu félagsins. Skákmótin eru þessi: Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák.Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið.Jólaskákmótið ...

Lesa »

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2022.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 16 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur. Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 20. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30. Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu! Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek. Glæsileg ...

Lesa »

Hrafn var dínamit.

Vinaskákfélagið heldur í dag (12 október 2022) minningarskákmót um Hrafn Jökulsson í Norður­ turninum í Smáralind. Hrafn var verndari félagsins alla sína tíð en þeir Hjálmar Hrafn Sigurvaldason, Ólafur Thorsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson segja mótið verða í hressari kantinum, eins og Hrafn hefði viljað. Svona byrjar grein í Fréttablaðinu um þá félaga Hjálmar Hrafn Sigurvaldason, Ólafur Thorsson og Guðjón ...

Lesa »

XO SKÁKMÓT NORÐUR TURNAR / SMÁRALINDAR – MINNINGARMÓT HRAFNS JÖKULSSONAR.

Verður haldið miðvikudaginn 12. október nk. milli 16.00 til 18.30 í Norður Turni Smáralindar. Mótið er eitt af stærri hraðskákmótum ársins. Og það má reikna með að margir af stigahæstu skákmönnum landsins mæti, ásamt erlendum skákmeisturum – sem verða með í Íslandsmóti skákfélaga sem verður haldin stuttu eftir hraðskákmótið, helgina 13. – 16. október. Mótshaldarar halda úti Viðburðasíðu vegna mótsins: ...

Lesa »

Minningargrein um Hrafn Jökulsson 2022.

Látinn er kær vinur og félagi Hrafn Jökulsson sem lést laugardaginn 17 september 2022. Það er margt að minnast, þó okkar kynni séu kannski ekki svo löng. Minnið getur stundum verið svolítið stopult, þegar maður er að reyna að rifja upp kynni, en hér ætla ég að stikla á stóru. Ég kem á haustmánuðum 2012 í Vin Dagsetur að Hverfisgötu ...

Lesa »