Skákhof Vinaskákfélagsins í Vin.

Sumargeðmót Vinaskákfélagsins 2021.

Vinaskákfélagið mun halda sitt venjubundna sumarskákmót sem að þessu sinni verður sérstaklega tileinkað geðfötluðum og heitir mótið „Sumargeðmót Vinaskákfélagsins“. Mótið verður haldið þriðjudaginn 27 júlí 2021, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47.
Hámark á mótið er 30 manns!
Athugið breytta dagsetningu!! Spáð er gott veður á þriðjudaginn.
Ef til þess kemur að ákveðið verður samkomutakmarkanir verður tekið ákvörðun út frá þeim.
Hugsanlega að það verði að aflýsa mótinu.

Tefldar verða 6 umferðir með 4 + 2 mínútur á skák.
Ef tveir verða efstir og jafnir, þá keppa þeir til úrslita um sigurinn í „bráðabana“, þar sem hvítur hefur 5 mínútur og svartur 4 mínútur og nægir svartur jafntefli til að vinna.
Keppt verður um það hver verður Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2021.
Skákdómari er Hörður Jónasson og skipuleggjari er Róbert Lagerman.
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Fólki frá Búsetukjörnum og athvörfum boðið á mótið og því afhent skákbók að gjöf. Bókin Heimsbikarmót Stöðvar 2 1988 verður gefin þeim.
Vinaskákfélagið þakkar Braga Halldórssyni fyrir hans höfðinglegu gjöf á þessari skákbók.

Í hléi verður boðið upp á kaffi og 60 manna súkulaðiköku.
Verðlaun:
1. Sæti. Bikar + gull verðlaunapeningur + skákbók +15.000 kr.
2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + skákbók + 10.000 kr.
3. Sæti. Bronze verðlaunapeningur + skákbók + 5.000 kr.

Þið getið skráð ykkur á mótið á gula kassanum á skak.is
einnig er hér:  Skráningarrform
Til að sjá hverjir hafi skráð sig: Sumargeðmót  Vinaskákfélagsins
Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Allir velkomnir!!

x

Við mælum með

Glatt á hjalla á Skemmtikvöldi Vinaskákfélagsins 2024.

Skemmtikvöld Vinaskákfélagsins var haldið þriðjudagskvöldið 23 janúar 2024. Dagskrá kvöldsins er glæsileg: Við fengum alþjóðlega ...