Hópmynd af afhendingu á gjöfinni

Heimsókn Vinaskákfélagsins í Búsetukjarnanum á Gunnarsbraut 51.

Vinaskákfélagið heimsótti í dag 2 júlí 2021 og færði Búsetukjarnanum á Gunnarsbraut 51 góða gjöf. Félagið kom færandi hendi með töfl, skákklukkur og bókargjöf. Þetta var þriðja heimsókn félagsins, en áformað er að heimsækja fleiri staði á árinu 2021 -2022.

Tekið var vel á móti félagsmönnum, þeim Herði Jónassyni og Hjálmari Siguvaldssyni.

Friðrik Atlason tók á móti gjöfinn ásamt Jóhann Bernhard Jóhannssyni sem er meðlimur í Vinaskákfélaginu. Félagið gaf Jóhanni Bernhard skákbókina “Heimsbikarmót Stöðvar 2 1988” eftir Braga Halldórssyni.  

Ástæða þess að Vinaskákfélagið ákveður að gefa Búsetukjörnum, geðdeildum og Athvörfum, töfl, skákklukkur og skákbækur er til að efla skáklíf meðal fólks með geðraskanir og fá það til að vera í meiri félagskap við hvert annað. Skák er góð íþrótt til að fá fólk til að einbeita sér.

Sumarið 2020 samdi Vinaskákfélagið við Skáksambandið að það gæfi skáksett og skákklukkur í þetta verkefni og vill Vinaskákfélagið þakka þeim kærlega fyrir þeirra þátt í þessu.

Einnig vill stjórn félagsins þakka Braga Halldórssyni fyrir að gefa 20 skákbækur í þetta verkefni og eins í verðlaun á skákmótum félagsins.

Kveðja, Hörður Jónasson varaforseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Glatt á hjalla á Skemmtikvöldi Vinaskákfélagsins 2024.

Skemmtikvöld Vinaskákfélagsins var haldið þriðjudagskvöldið 23 janúar 2024. Dagskrá kvöldsins er glæsileg: Við fengum alþjóðlega ...