Mynd af sigurvegurum ásamt afmælisbarninu Guðfinni

Róbert Lagerman sigraði á skákmóti hjá Ásum.

Í dag 18 mars fórum við Róbert Lagerman á skákmót hjá Æsir skákklubbi eldri borgara.

Tefldar voru 10 umferðir með 10 mínútur á skák.

Haldið var upp á það að Guðfinnur R. Kjartansson varð 80 ára í gær.

Eftir 5 umferðir var gert hlé og gæddu menn sér á dýrindis tertu með mynd af Guðfinni.

Tertan fræga

Úrslit urðu þau að Róbert Lagerman sigraði með 8,5 vinningar af 10 mögulegum.

2 sæti varð Bragi Halldórsson líka með 8,5 vinninga

3 sæti varð svo Kristján Stefánsson með 7 vinninga.

Sjá öll úrslit hér: Æsir skákklúbbur eldri borgara | Facebook

Kveðja, Hörður Jónasson

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 7 apríl 2025.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 7 apríl kl. 13:00. ...