Róbert Lagerman afhendir Arnari Pan sýningartafl

Róbert Lagerman heimsótti Leikskólann Dvergastein.

Róbert Lagerman heimsótti í dag 27 ágúst 2024 Leikskólann Dvergastein og kom færandi hendi með sýningartafl að gjöf. Þetta var 11 heimsókn meðlima Vinaskákfélagsins.

Tekið var vel á móti Róbert Lagerman gjaldkera Vinaskákfélagsins.

Arnar Pan Deildarstjóri í deildinni Trölladyngju tók á móti gjöfinni.

Þetta er frábært framtak hjá þeim í Leikskólanum Dvergastein að kenna krökkunum skák. Við í Vinaskákfélaginu ætlum að halda tengsl við Leikskólann Dvergastein.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 7 apríl 2025.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 7 apríl kl. 13:00. ...