Logo Alþjóðlega Geðheilbrigðisdagsins

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2022.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 16 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 20. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30. Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu!

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Eftirfarandi verðlaun eru þessi:

  1. 1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
  2. 2. Sæti: Silfur peningur + bók.
  3. 3. Sæti: Brons peningur + bók.
  4. 1. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
  5. 1. Sæti: 60 +: Gull peningur + bók.
  6. 1. Sæti: U16: Gull peningur + bók.

Skráningarform: Geðheilbrigðismótið 2022

Til að sjá hverjir hafi skráð sig: Sjá skráða skákmenn

Allir velkomnir!!

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...