Fréttir
Vinaskákfélagið fékk styrk frá Styrktarsjóði Geðheilbrigðis 2024.
Sú gleðilega frétt barst okkur í stjórn Vinaskákfélagsins fyrir nokkrum dögum að við hefðum fengið styrk frá Geðsjóði – Styrktarsjóði Geðheilbrigðis nú í ár.
Í dag 13 nóvember 2024, fórum við Róbert Lagerman til að skrifa undir samning vegna styrksins á veitingastaðnum Nauthóli.

Styrkurinn sem við fáum fer í að fjármagna 3 skákmót Vinaskákfélagsins.
Skákmótin eru þessi:
- Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið.
- Jólaskákmótið á Kleppi.
- Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins.
Með kveðju frá stjórninni.
