Stjórnarmeðlimir í Vinaskákfélaginu

Meistaramót Vinaskákfélagsins 2017

Meistaramót Vinaskákfélagsins í atskák verður haldið 23 febrúar, 9 mars og 16 mars.

Ákveðið er að hafa skákmótið á 3 stöðum ef húsrúm leyfir. Þetta verður árlegt skákmót.

  • 23. Febrúar verður það haldið í Vin Hverfisgötu 47.
  • 09. Mars verður það í Hlutverkasetrið Borgartúni 1.
  • 16. Mars verður það annaðhvort í Vin eða í Skáksambandinu / Skákskólanum í Faxafeni. Keppendum verður tilkynnt um það síðar.

Skákmótið verður 8 umferðir. 3 skákir á kvöldi, nema síðasta kvöldið þá verða tefldar 2 skákir og verðlaunaafhending að þeim loknum. Tímamörkin eru 15 mín. + 10 sek. uppbótartími á leik.  Mótið er reiknað til atskákstiga. Mótið hefst kl. 19:30. Þetta verður opið skákmót fyrir alla.

Verðlaun:

  • 1. sætið eignarbikar + gullpeningur. Einnig verðum við með farandbikar en þetta skákmót verður síðan árlegt.
  • 2. sætið silfurpeningur.
  • 3. sætið bronzepeningur.
  • Einnig ætlar einn félagi í Vinaskákfélaginu að gefa andlitsteikningar af frægum skákmönnum.

Veitingar: Kaffi og kökur verða á skákstað.

Þátttökugjald á mótið er að félagsmenn greiði 500 kr., en 2.000 kr. fyrir aðra.

Ath. að Hollvinir Vinaskákfélagsins fá frítt á skákmótið.

Þið getið skráð ykkur á mótið á gula kassanum efst á síðunni á skak.is

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...