Afhending á skáksetti og skákklukkum í Hlutverkasetri

Heimsókn Vinaskákfélagsins í Hlutverkasetur 2021.

Vinaskákfélagið heimsótti Hlutverkasetrið í dag 2 febrúar 2021. Félagið færði Hlutverkasetrinu góða gjöf eða töfl og skákklukkur.

Elín Ebba forstöðukona Hlutverkaseturs tók á móti gjöfinni.

Ástæða þess er sú að Vinaskákfélagið ákvað að gefa Búsetukjörnum, geðdeildum og Athvörfum, töfl og skákklukkur til að efla skáklíf
meðal fólks með geðraskanir og fá það til að vera í meiri félagskap við hvert annað.
Skák er góð íþrótt til að fá fólk til að einbeita sér.

Sumarið 2020 samdi Vinaskákfélagið við Skáksambandið að það gæfi skáksett og skákklukkur í þetta verkefni og vill Vinaskákfélagið
þakka þeim kærlega fyrir þeirra þátt í þessu.

Heimsóknir áttu að byrja á árinu 2020, en vegna kórónuveirunnar, þá frestaðist þetta.
Nú erum við byrjuð og var Hlutverkasetrið fyrsti staðurinn sem Vinaskákfélagið heimsækir.
Við eigum svo eftir að heimsækja marga staði á árinu, enda vonum við að þessi leiðinlega veira sé á útleið.

Kveðja, Hörður Jónasson varaforseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Friðriksmót Vinaskákfélagsins 2024.

Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót í kringum fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið laugardaginn 27 ...