Hópmynd á Jólaskákmóinu á Kleppi 2023

Gleðin við völd í Jólaskákmótinu á Kleppi 2023.

Hið árlega Jólaskákmót á Kleppi var haldið miðvikudaginn 13 desember kl. 13:00

Þetta er eitt skemmtilegasta mót ársins enda var gleðin allsráðandi.

Á mót­inu leiddu sam­an hesta sína skák­sveit­ir frá geðdeild­um, bú­setu­kjörn­um og bata­setr­um ásamt sveitum frá Vinaskákfélaginu. Fjórar sveitir kepptu um sigurinn.

Vinaskákfélagið stóð fyrir verðlaunum, einnig voru bókaverðlaun og var glæsilegt úrval bóka í ár. Bókaforlagið Skrudda útgáfa styrkti mótið með glæsilegum bókum.

Til að skákmenn yrðu ekki svangir, þá var kaffi og kökur sem skákmenn gæddu sér á.

3 eru í hverju liði og hefur ríkt sú hefð að ef vantar í lið, þá er því reddað. Þannig að stundum er lánað skákmenn í önnur lið. Keppt er allir við alla (lið) eða 3 skákir.

Þær sveitir sem kepptu í ár voru:

Vin, Bland, Geysir og Flókinn.

Eft­ir æsispenn­andi keppni sigraði lið Vin, sem skipað voru: Róbert Lagerman, Runólfi Ingi Ólafssyni og Björgvin Kristbergssyni.

Fyrstu verðlaun-liðakeppni

Í öðru sæti var lið Bland, sem skipað voru: Hörður Jónasson, Alexander og Pétri Jóhannessyni.

Önnu verðlaun-liðakeppni

Í þriðja sæti var lið Flókinn, sem skipað voru: Ricardo, Jón Gauti og Gunnar Gestson.

Þriðju verðlaun-liðakeppni

Veitt voru einnig borðaverðlaun og fyrir bestan árangur á:

  1. Borði hlaut Róbert Lagerman með 2,5 vinninga.
  2. Borð hlaut Alexander með 3 vinninga.
  3. Borð hlaut Björgvin Kristbersson með 3 vinninga.

1 borða verðlaun

2 borða verðlaun

3 borða verðlaun

 

 

 

 

 

 

Mótið tókst með eindæmum vel og þakkar Vinaskákfélagið öllum sem komu á mótið.

Kveðja, Hörður Jónasson, forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Vinaskákfélagið fékk styrk frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024.

Afhending á styrkjum frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar 2024 var afhent í dag 18 mars 2024 í ...