Skákhof Vinaskákfélagsins í Vin.

Sumargeðmót Vinaskákfélagsins 2021.

When:
26. júlí, 2021 @ 13:00 – 15:15
2021-07-26T13:00:00+00:00
2021-07-26T15:15:00+00:00
Where:
Hverfisgata 47
101 Reykjavík
Ísland
Contact:
Hörður Jónasson
+3547774477

Vinaskákfélagið mun halda sitt venjubundna sumarskákmót sem að þessu sinni verður sérstaklega tileinkað geðfötluðum og heitir mótið „Sumargeðmót Vinaskákfélagsins“.

Mótið verður haldið mánudaginn 26 júlí 2020, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47.

Tefldar verða 6 umferðir með 4 + 2 mínútur á skák.

Ef tveir verða efstir og jafnir, þá keppa þeir til úrslita um sigurinn í „bráðabana“, þar sem hvítur hefur 5 mínútur og svartur 4 mínútur og nægir svartur jafntefli til að vinna.

Keppt verður um það hver verður Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2021.

Skákdómari er Hörður Jónasson og skipuleggjari  er Róbert Lagerman.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

 

Fólki frá Búsetukjörnum og athvörfum boðið á mótið og því afhent skákbók að gjöf. Bókin Heimsbikarmót Stöðvar 2 1988 verður gefin þeim.

Vinaskákfélagið þakkar Braga Halldórssyni fyrir hans höfðinglegu gjöf á þessari skákbók.

 

Í hléi verður boðið upp á kaffi og 60 manna afmælisköku.

Verðlaun:

  1. Sæti. Bikar + gull verðlaunapeningur + skákbók +15.000 kr.
  2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + skákbók + 10.000 kr.
  3. Sæti. Bronze verðlaunapeningur + skákbók + 5.000 kr.

 

Þið getið skráð ykkur á mótið á gula kassanum hér á skak.is

Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.

Allir velkomnir!!

Skrifa svar

Netfangið verður ekki notað í öðrum tilgangi.Fylla þarf út sérmerkta reiti *

*