Verðlaunahafar 2019

Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2021.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 15 ár, og á allra síðustu árum í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

Mótið er haldið í sameiningu af Vinaskákfélaginu og Taflfélagi Reykjavíkur og verður haldið, fimmtudaginn, 14. Október, í Faxfeni 12 í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30.

Birnukaffi verður á sínum stað!!

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

Eftirfarandi verðlaun eru þessi:

  1. 1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
  2. 2. Sæti: Silfur peningur + bók.
  3. 3. Sæti: Brons peningur + skákbók (Heimsbikarmót Stöðvar 2, 1988).
  4. 1. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
  5. 1. Sæti: 50 +: Gull peningur + bók.
  6. 1. Sæti: 65 +: Gull peningur + bók.
  7. 1. Sæti: U16: Gull peningur + bók.
  8. Happdrætti: skákbók (Heimsbikarmót Stöðvar 2, 1988).

Skráningarform: Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið

Skráning fer einnig fram á gula kassanum á skak.is.

Til að sjá hverjir hafi skráð sig: Alþjóða Geðheilbrigðis skákmótið 2021

Allir velkomnir!!

x

Við mælum með

Glatt á hjalla á Skemmtikvöldi Vinaskákfélagsins 2024.

Skemmtikvöld Vinaskákfélagsins var haldið þriðjudagskvöldið 23 janúar 2024. Dagskrá kvöldsins er glæsileg: Við fengum alþjóðlega ...