Verðlaunahafar á Páskamóti Vinaskákfélagsins 2023

Róbert Lagerman sigraði á Páskaskákmóti Vinaskákfélagsins 2023.

Í dag 27 mars 2023 var hið árlega Páskaskákmót Vinaskákfélagsins haldið í Vin Dagsetur.

Tefldur voru 6 umferðir með 7 mín., á klukkunni. 13 manns mættu til leiks.

Sabrina starfsmaður í Vin lék fyrsta leikinn fyrir Tómas Ponzi á móti Róberti Lagerman.

Sabrina leikur fyrsta leikinn fyrir Tómas Ponzi á móti Róbert Lagerman

Róbert Lagerman sigraði mótið með fullu húsi eða 6 vinninga.

2 sæti varð Ólafur Thorsson líka með 4,5 vinninga.

3 sæti varð Magnús Magnússon með 4 vinninga.

Fyrstu 3 sætin fengu auk verðlaunapeninga, páskaegg að launum.

Aukavinningur 1 hlaut Runólfur Ingi Ólafsson fékk hann páskaegg að launum.

Aukavinningur 2 hlaut Gunnar Gestsson og fékk hann líka páskaegg.

Hlé var gert eftir 4 umf., og gæddu skákmenn sér á ljúfengum vöflum og kaffi hjá þeim Sabrínu, Bryndísi og Erik starfsfólk Vinjar.

Allir skemmtu sér vel og gekk mótið vel.

Sjá úrslit mótsins hér: Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 2023

Kveðja, stjórn Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...