Skákdómari og Skákstjóri

Meistaramót Vinaskákfélagsins verður haldið 25 júlí 2022

Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið mánudaginn 25 júlí 2022, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47.

Mótið heitir „Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2022“.

Tefldar verða 7 umferðir með 3 mín. + 2 sek., á skák. Er þetta í fyrsta sinn sem Vinaskákfélagið notar þessi tímamörk.

Ef tveir verða efstir og jafnir, þá keppa þeir til úrslita um sigurinn í „bráðabana“, þar sem hvítur hefur 5 mínútur og svartur 4 mínútur og nægir svörtum jafntefli til að vinna.

Einnig er keppt um það hver verður Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2022.

Skákdómari er Róbert Lagerman og mótstjóri er Hörður Jónasson.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Í hléi verður boðið upp á kaffi og 60 manna súkkulaðiterta.

Aðalverðlaun:

  1. Sæti. Bikar + gull verðlaunapeningur + 15.000 kr.
  2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + 10.000 kr.
  3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + 5.000 kr.

Verðlaun félaga í Vinaskákfélaginu:

  1. Sæti. Farandbikar + gull verðlaunapeningur + skákbók.
  2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + skákbók.
  3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + skákbók.

Þegar skráðir skákmenn: Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2022

Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2022

Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2022

Nafn
Nafn
First
Last

Allir velkomnir!!

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...