1. umferð á Jólaskákmótinu á Kleppi

Gleðin við völd í Jólaskákmótinu á Kleppi 2022.

Loksins, loksins, var hægt að halda hið árlega jólaskákmót Vina­skák­fé­lags­ins á Kleppi, en það var haldið núna 12 desember 2022.

Þetta er skemmtilegasta mót ársins enda var gleðin allsráðandi, sérstaklega þar sem ekki hefur verið hægt að halda mótið í 3 ár eða síðan í desember 2019.

Á mót­inu leiddu sam­an hesta sína skák­sveit­ir frá geðdeild­um, bú­setu­kjörn­um og bata­setr­um ásamt sveitum frá Vinaskákfélaginu. Sex sveitir kepptu um sigurinn.

Vinaskákfélagið stóð fyrir verðlaunum, einnig voru bókaverðlaun og var glæsilegt úrval bóka í ár. Þau bókaforlög sem styrktu skákmótið voru: Skrudda, Sögur útgáfa og Benedikt útgáfa.

Til að skákmenn yrðu ekki svangir, þá var kaffi og kökur sem skákmenn gæddu sér á.

3 eru í hverju liði og hefur ríkt sú hefð að ef vantar í lið, þá er því reddað. Þannig að stundum er lánað skákmenn í önnur lið. Keppt er allir við alla (lið) eða 5 skákir.

Þær sveitir sem kepptu í ár voru:

Vin X, Vin Y, Mixed, Geysir, Flókinn X og Flókinn Y.

Eft­ir æsispenn­andi keppni sigraði lið Vin-Y, sem skipað voru: Róbert Lagerman, Herði Jónas­syni og Höskuldi Dungal. (sjá mynd).

1 verðlaun-liðakeppni

Í öðru sæti var lið Vin-X, sem skipað voru: Ólafur Thorsson, Hjálmari sigurvaldason og Pétri Jóhannessyni. (sjá mynd).

2 verðlaun-liðakeppni

Í þriðja sæti var lið Mixed, sem skipað voru: Gauti Páll, Ricardo og Kári.

3 verðlaun-liðakeppni. Á myndina vantar Kára

Veitt voru einnig borðaverðlaun og fyrir bestan árangur á:

  1. Borði hlaut Róbert Lagerman með 4,5 vinninga.
  2. Borð hlaut Hjálmar Sigurvaldason með 5 vinninga.
  3. Borð hlaut Höskuldur Dungal með 5 vinninga.

1 borða verðlaun

2 borða verðlaun

3 borða verðlaun

 

 

 

 

 

 

Mótið tókst með eindæmum vel og þakkar Vinaskákfélagið öllum sem komu á mótið.

Kveðja, Hörður Jónasson, forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...