Vinaskákfélagið er ekki með þátttökugjöld á skákmótum og leitar því félagið til fyrirtækja og einstaklinga til að styrkja starfsemi sína.
Starfsemi og markmið Vinaskákfélagsins:
- Aðal markmið félagsins er að efla skáklíf meðal fólks með geðraskanir.
- Halda skákmót í Vin, Hverfisgötu 47 og Aflagranda 40.
- Einnig allir velkomnir í Vin að tefla og læra að tefla.
- Fara og tefla við fólk í Samfélagshúsinu Aflagranda 40 á mánudögum.
- Halda Geðheilbrigðis skákmótið (ásamt TR) árlega í kringum 10 okt. sem er Alþjóðlegi Geðheilbrigðisdagurinn.
- Halda sérstakt jólaskákmót á Kleppi árlega í desember meðal fólks með geðraskanir.
- Vera með á Íslandsmóti Skákfélaga.
- Fara í heimsóknir á Búsetukjarna, athvörfum og geðdeildum til að gefa fólki töfl og skákklukkur.
Vinaskákfélagið leitar til fyrirtækja, til að styrkja einstök skákmót, en einnig geta einstaklingar styrkt félagið með frjálsum framlögum.
Til að styrkja félagið, þá er styrktarreikningurinn: 0133-26-012306 og kennitala: 630913-1010