Verðlaunahafarnir

Róbert Lagerman vann Crazy Culture skákmótið 2025.

Crazy Culture skákmóti Vinaskákfélagsins var haldið mánudaginn 18 ágúst, kl: 16, í samfélagshúsinu Aflagranda 40. Þetta var í 6ja sinn sem mótið er haldið. Þó fámennt hafi verið, skemmtu sér allir vel, en 9 manns tefldu.

Tefldar voru 7 umferðir með 4 mín + 2 sek á skák.

Skákdómari var Róbert Lagerman en mótstjóri var Hörður Jónasson.

Mótið var ennfremur reiknað til hraðskákstiga.

Ragna skákkona sem hefur mætt á mánudögum á Aflagranda ásamt mér og fleirum á skákæfingum lék fyrsta leikinn fyrir Jóhanni Valdimarssyni gegn Róberti Lagermanni.

Ragna leikur fyrsta leikinn fyrir Jóhann

Vinaskákfélagið var með kaffi og smákökur á meðan á skákmótinu stóð.

Sigurvegari varð Róbert Lagerman með 7 vinninga af 7 möguleikum.

Róbert Lagerman veð 1 verðlaunin

2. sæti varð Sæbjörn Guðfinnsson með 5 vinninga

3. sæti varð svo Jóhann Valdimarsson líka með 5 vinninga, en færri stig.

Þess má geta að Róbert Lagerman vann svo áritun á Crazy Culture farandbikarinn sem var fyrir félaga í Vinaskákfélaginu árið 2025.

Sjá öll úrslit hér: Crazy Culture skákmót Vinaskákfélagsins 2025

Kveðja Hörður Jónasson forseti félagsins.

x

Við mælum með

Aðalfundur Vinaskákfélagsins 2025.

Aðalfundur Vinaskákfélagsins verður haldinn þriðjudaginn 13 maí 2025 í Vin, Hverfisgötu 47, 101 Reykjavík klukkan ...