Sigurvegarar ásamt forseta Vinaskákfélagsins

Róbert Lagerman sigraði á Páskaskákmóti Vinaskákfélagsins 2026.

Í dag 23 mars 2026 var haldið glæsilegt Páskaskákmót Vinaskákfélagsins í Vin Dagsetur.

Teflar voru 6 umferðir með 7 mín., á klukkunni.

14 manns mættu til leiks.

Sigurlaug lék fyrsta leikinn hjá Ólafi Thorssyni gegn Erlingi Arnarsyni.

Sigurlaug lék fyrsta leikinn fyrir Ólaf á móti Erlingi

Róbert Lagerman sigraði mótið með 5,5 vinninga.

2 sæti varð Tómas Björnsson með 5 vinninga.

3 sæti varð Aðalsteinn Thorarensen með 4 vinninga.

Sigurvegarar á Páskaskákmótinu 2026.

Fyrstu 3 sætin fengu auk verðlaunapeninga, páskaegg að launum.

Aukavinningur hlaut Erlingur Arnarson og fékk hann páskaegg að launum.

Að lokum skákmóti, gæddu skákmenn sér á smákökum og kaffi hjá starfsfólki Vinjar.

Allir skemmtu sér vel og gekk mótið vel.

Sjá öll úrslit mótsins hér: Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 2026

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Skákmenn ársins hjá Vinaskákfélaginu 2025.

Í dag mánudaginn 8 desember 2025 afhenti Forseti Vinaskákfélagsins Hörður Jónasson viðurkenningu til 3 skákmanna ...