Hið árlega Jólaskákmót á Kleppi var haldið miðvikudaginn 10 desember kl. 13:00
Þetta er eitt skemmtilegasta mót ársins enda var gleðin allsráðandi.
Á mótinu leiddu saman hesta sína skáksveitir frá geðdeildum, búsetukjörnum og batasetrum ásamt sveitum frá Vinaskákfélaginu. Fjórar sveitir kepptu um sigurinn.
Vinaskákfélagið stóð fyrir verðlaunum, einnig voru bókaverðlaun og var glæsilegt úrval bóka í ár. Bókaforlagið Skrudda styrkti mótið með glæsilegum bókum.
Til að skákmenn yrðu ekki svangir, þá var kaffi og kökur sem skákmenn gæddu sér á.
3 eru í hverju liði og hefur ríkt sú hefð að ef vantar í lið, þá er því reddað. Þannig að stundum er lánað skákmenn í önnur lið. Keppt er allir við alla (lið) eða 3 skákir.
Þær sveitir sem kepptu í ár voru:
Vin X, Flókinn A, Flókinn Ö og Starengi 6.
Eftir æsispennandi keppni sigraði lið Vin X, sem skipað voru: Róbert Lagerman, Hörður Jónasson og Guðmundur Kristjánsson.
Í öðru sæti var lið Starengi 6, sem skipað voru: Bjarki Garðarsson, Hrólfur K. Valdimarsson og Gilbert Þór Jökulsson.
Í þriðja sæti var lið Flókinn A, sem skipað voru: Jón Gauti Ingibjargarson, Pétur Jóhannesson og Gunnar Gestsson.
Veitt voru einnig borðaverðlaun og fyrir bestan árangur á:
- Borði hlaut Róbert Lagerman með 2,5 vinninga.
- Borð hlaut Hrólfur K. Valdimarsson með 3 vinninga.
- Borð hlaut Guðmundur Kristjánsson með 3 vinninga.
Mótið tókst með eindæmum vel og þakkar Vinaskákfélagið öllum sem komu á mótið.
Kveðja, Hörður Jónasson, forseti Vinaskákfélagsins.
ps. Myndir frá jólamótinu koma bráðlega inn á Myndasafnið okkar.
Vinaskákfélagið Við erum ein fjölskylda.


