Alþjóðlega Geðheilbrigðisskákmótið 2025.
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin cirka 19 ár, og í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.
Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 9. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og hefst klukkan 19:30.
Margir af sterkustu skákmönnum landsins hafa mætt á þetta mót.
Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.
Skákstjórn verður í höndum TR, En verðlaun og skipulagning í höndum Vinaskákfélagsins.
Hlé verður gert eftir 5 umf. Til að skákmenn geti fengið sér kaffi og meðlæti.
Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.
Eftirfarandi verðlaun eru þessi:
1. 1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
2. 2. Sæti: Silfur peningur + bók.
3. 3. Sæti: Brons peningur + bók.
4. 1. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
5. 1. Sæti: 50 ára og eldri: Gull peningur + bók.
6. 1. Sæti: 16 ára og yngri: Gull peningur + bók.
Skráning fer fram á staðnum.
Sigurvegari 2024 var: Vignir Vatnar Stefánsson.
Fólk er beðið um að koma snemma til að skrá sig.
Allir velkomnir!!