Sigurður Páll Guðnýjarson sigraði Þorramót Vinaskákfélagsins 2022.

Fyrsta Þorraskákmót Vinaskákfélagsins var haldið á chess.com, mánudaginn 24 janúar.

8 skákmenn mættu til leiks og voru tefldar 4 umferðir með 4 + 2 mín, á klukkunni.

Teflt var á grúbbu Vinaskákfélagsins: https://www.chess.com/club/vinaskakfelagid

Hart var barist, þó fámennt væri, en þegar upp var staðið þá sigraði Sigurður Páll Guðnýjarson á fullu húsi.

Röð 3 efstu manna var sem hér segir:

1 sæti Sigurður Páll Guðnýjarson með 4 vinninga og fær skákbókina ” The Chess Saga of Friðrik Ólafsson”.

2 sæti varð Óskar Maggason með 2,5 vinninga og fær í verðlaun bókina sína ”Heimsbikarmót Stöðvar 2”.

3 sæti varð Hörður Jónasson líka með 2,5 vinninga en lægri á stigum og fær bókina ”Besti leikurinn”.

Auk bókarverðlauna voru Gull, Silfur og Bronze peningar.

Hægt er að sjá öll úrslit hér: Þorraskákmót Vinaskákfélagsins

Sigurvegarar geta sótt verðlaun sín í Vin, Hverfisgötu 47 virka daga. Kl. 12-15.

Kv. Stjórn Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...