Sigurvegarar á Vinaslag 4

Róbert Lagerman vann Vinaslag 4 á Aflagranda 40.

Vinaskákfélagið hélt skákmót á Aflagranda 40, mánudaginn 28 nóvember sem var „Vinaslagur 4“.

Þetta var fjórða og síðasta skákmótið í Vinaslagnum núna í nóvember.

Þess má geta að WIM Olga Prudnykova frá Úkraníu tefldi með okkur í mótinu.

Tefldar voru 6 umferðir með 4 mín + 2 sek.

Hart var barist, en sigurvegari varð Róbert Lagerman með fullu húsi.

Sigurvegarar:

1 sæti: Róbert Lagerman með 6 vinninga.

2 sæti: Olga Prudnykova með 5 vinninga.

3 sæti: Ólafur Thorsson með 4 vinning.

Öll úrslit er hægt að sjá hér: Vinaslagur 4

Ennfremur var keppt um Grand Prix stig.

Í Vinaslag 1 til 4 geta keppendur bætt við sig Grand Prix stigum og sá sem verður efstur á stigum í lokin fær 10.000 kr., í verðlaun.

3 efstu Grand Prix stigin í Vinaslag 4:

Róbert Lagerman með 10 stig.

Olga Prudnykova (Úkranía) 8 stig.

Ólafur Thorsson 6 stig.

Lokastaðan á Grand Prix stigunum eftir Vinaslag 4.

  1. Róbert Lagerman 34 stig.
  2. Olga Prudnykova 20 stig.
  3. Andrii Prudnykov (Úkranía) 16 stig.
  4. Ólafur Thorsson 16 stig.
  5. Davíð Kjartansson 8 stig.
  6. Gauti Páll Jónsson 8 stig.
  7. Hörður Jónasson 6 stig.
  8. Hjálmar Sigurvaldason 4 stig.
  9. Ingvar Örn Birgisson 4 stig.
  10. Óskar Maggason 4 stig.
  11. Arnljótur Sigurðsson 2 stig.
  12. Magnús Matthiasson 2 stig.

Kv. Stjórn Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...