Róbert Lagerman með farndbikarinn og Hörður forseti félagsins

Róbert Lagerman vann Crazy Culture skákmótið sem var til styrktar Hrafni Jökulssyni.

Glæsilegu Crazy Culture skákmóti Vinaskákfélagsins var haldið mánudaginn 22 ágúst, kl: 16, í samfélagshúsinu Aflagranda 40. Þetta var í 4ja sinn sem mótið er haldið. Mættir voru 10 manns og eins og máltækið segir „fámennt en góðmennt“.

Þess má geta að Sæmi Rokk tók þátt í þessu skákmóti.

Tómas Ponzi og Sæmi Rokk að tefla

Í þetta sinn var mótið til styrktar Hrafni Jökulssyni sem hefur verið að glíma við mjög alvarleg veikindi. Hann hefur lengi verið þjónn skákgyðjunnar og lyft grettistökum á þeim vettvangi. Hann er einn af stofnendum Vinaskákfélagsins sem var stofnað 2003 og hefur verið ötull og drifkraftur í að gera félagið eins og það er í dag.

Hrafn Jökulsson og Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins

Hrafn hefur um langa hríð búið við þröngan kost og útgjöld vegna veikindanna hafa þrengt hann enn frekar. Við getum létt undir með Hrafni með því styrkja hann og þar gerir margt smátt eitt stórt.

Hrafn Jökulsson kt. 011165-3709, reikningsnúmer 1161-05-400511.
Gens una Sumus / Við erum ein fjölskylda!

Tefldar voru 7 umferðir með 4 mín + 2 sek á skák.
Skákdómari var Róbert Lagerman en mótstjóri var Hörður Jónasson.
Mótið var ennfremur reiknað til hraðskákstiga.

Stutt hlé var eftir 4 umferðir og voru starfsmenn með kaffi og vöfflur til sölu á staðnum.

Sirí forstöðukona og Hrafn

Sigurvegari varð Róbert Lagerman með 6,5 vinning af 7 möguleikum.

  1. sæti varð Gauti Páll Jónsson með 6 vinninga
  2. sæti varð svo Birgir Berndsen með 5 vinninga.

Þess má geta að Róbert vann svo áritun á Crazy Culture farandbikarinn fyrir 2022.

Sjá öll úrslit hér: Crazy Culture skákmót Vinaskákfélagsins 2022

Kveðja Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Glatt á hjalla á Skemmtikvöldi Vinaskákfélagsins 2024.

Skemmtikvöld Vinaskákfélagsins var haldið þriðjudagskvöldið 23 janúar 2024. Dagskrá kvöldsins er glæsileg: Við fengum alþjóðlega ...