Verðlaunahafar ásamt Gunnari Gestssyni og Herði Jónassyni á Jólaskákmótinu

Róbert Lagerman sigraði á Jólaskákmóti Vinaskákfélagsins 2021.

Í dag 13 desember 2021 var jólaskákmót Vinaskákfélagsins haldið í Vin Dagsetur.

Tefldar voru 6 umferðir með 7 mín., á klukkunni. Fámennt en góðmennt var en 9 skákmenn mættu til leiks.

Elísa dóttir Halldóru Pálsdóttir forstöðukonu Vinjar lék fyrsta leikinn fyrir Róbert Lagerman á móti Herði Jónassyni.

Sigurvegari varð Róbert Lagerman með 6 vinninga eða með fullu húsi.

2 sæti varð Ólafur Thorsson með 5 vinninga.

3 sæti varð Sturla Þórðarson með 4 vinninga.

Aukavinningur 1 hlaut Jón Gauti Magnússon og fékk hann konfektkassa.

Aukavinningur 2 hlaut Björvin Kristbergsson og fékk hann skákbók að launum.

Í lok mótsins gæddu skákmenn sér á gómsætri súkkulagðiköku í boði Vinaskákfélagsins.

Allir skemmtu sér vel og gekk mótið vel.

Sjá úrslit mótsins hér: Jólaskákmót Vinaskákfélagsins 2021

Kveðja, stjórn Vinaskákfélagsins.

ps. Myndir koma bráðlega af mótinu inn á myndasafnið.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...