Forsíða

  • Sumarskákmót Vinaskákfélagsins í Vin

  • Félagar í A og B sveitum fagna úrslitum í Deildó

  • Stjórn Vinaskákfélagsins 2023

  • Forseti afhendir heiðursverðlaun til Róberts Lagermans

  • Minningaveggur um Hrafn Jökulsson á minningamóti hans

  • Jólaskákmótið á Kleppi 2023

Opna meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák.

Opna meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 mánudaginn 17 júlí klukkan 13:00. Tefldar verða 6 umferðir með 7 mínútur á skák. Eins og undanfarin sumur þá verður teflt bæði inni og úti ef veður leyfir. Að hætti hússins þá verða veittar frábærar veitingar í hlé. Skákstjóri verður Róbert Lagerman. Verðlaun verða með hefðbundum hætti, gull, silfur ...

Lesa »

Geðhjálp veitir Vinaskákfélaginu styrk.

Geðhjálp hefur í dag veitt Vinaskákfélaginu styrk að upphæð 100.000 kr. Styrkurinn er veittur í þeim tilgangi að það verði haldið fjöltefli í húsnæði Geðhjálpar mánudaginn 21 ágúst kl. 16:00. Keppendur verða 10 manns frá athvörfum, búsetukjörnum, geðdeildum og fólki frá Kleppi. 1 til 2 frá hverjum stað. Engin skákmaður yfir 2000 skákstig mun tefla, þannig að þetta verða bara ...

Lesa »

Forseti og Varaforseti kosnir í stjórn Skáksambandsins.

Í dag 27 maí var haldin aðalfundur Skáksambands Íslands. Í kjöri voru 2 frá Vinaskákfélaginu eða Forseti Róbert Lagerman og Varaforseti Hörður Jónasson. Róbert Lagerman var kjörinn í stjórn og Hörður Jónasson kjörinn í varastjórn. Róbert Lagerman hefur áður setið í stjórn Skáksambandsins, en Hörður Jónasson er nú að setjast í fyrsta sinn. Þeir sem voru kosnir í stjórn eru: ...

Lesa »

Hörður Varaforseti býður sig fram sem varamaður í Skáksambandinu.

Hörður Jónasson Varaforseti Vinaskákfélagsins hefur ákveðið að bjóða sig fram sem varamaður hjá Skáksambandinu. Hér er kynningarbréf frá honum. Ég hef ákveðið að bjóða mig fram sem Varamaður hjá Skáksambandinu á aðalfundi þess þann 27 maí. Margir skákmenn þekkja mig nú þegar, enda hef ég tekið þátt í mörgum skákmótum síðan 2013. Ennfremur er ég Varaforseti Vinaskákfélagsins og er að ...

Lesa »

Aðalfundur Vinaskákfélagsins haldin þann 4 maí 2017.

Aðalfundur Vinaskákfélagsins var haldin þann 4 maí 2017. Öll almenn aðalfundastörf voru afgreidd, eins og skýrsla stjórnar, Uppgjör reikninga félagsins og lagabreytingar. Sjálfkjörið var í flest embætti en þó dró einn varamaður sig til baka þegar áhugi kom frá öðrum í það embætti. Hér er hin nýja stjórn: Forseti: Róbert Lagerman Varaforseti: Hörður Jónasson Gjaldkeri: Héðinn Briem Ritari: Hjálmar Sigurvaldason Meðstjórnandi: ...

Lesa »

Aðalfundur Vinaskákfélagsins

Aðalfundur Vinaskákfélagsins. Aðalfundur Vinaskákfélagsins verður haldinn 4 maí 2017 í Vin, Hverfisgötu 47, 101 Reykjavík klukkan 19:30.  Dagskrá aðalfundar er sem hér segir: Forseti setur fundinn. Kosning fundarstjóra. Skýrsla stjórnar lögð fram. Reikningar lagðir fram til samþykktar. Kaffi hlé! Lagabreytingar. Kosning stjórnar. Önnur mál. Stjórnin.

Lesa »

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins var haldið mánudaginn 3. Apríl, 2017 í Vin að Hverfisgötu 47. 10 skákmenn mættu og tefldar voru 6 umferðir með 7 mínútur á skák. Mótið var einnig reiknað til hraðskákstiga. Í hléi var boðið upp á frábærar veitingar, vöfflur með sultu og rjóma. Einnig var á boðstólum marsepan terta að ógleymdu kaffinu. Góð verðlaun var í boði. Páskaegg ...

Lesa »

Róbert Lagerman sigraði á Meistaramótinu!

Frábæru Meistaramóti Vinaskákfélagsins í atskák er nú lokið. Síðustu 2 umferðirnar voru tefldar í Skáksambandinu / Skákskólanum í Faxafeni. 11 skákmenn tefldu á atskákmótinu sem voru 8 umferðir með 15 mín. + 10 sek. á klukkunni. Hart var barist, en að lokum sigraði Róbert Lagerman, en hann vann með nokkrum yfirburðum eða með 7 vinninga af 8 mögulegum. Í öðru ...

Lesa »