Jólaskákmót Vinaskákfélagsins 2021.

Hið árlega Jólaskákmót Vinaskákfélagsins fer fram næsta mánudag 13 desember í Vin Dagsetur, Hverfisgötu 47. Mótið hefst klukkan 13:00 stundvíslega.

Mótið er 6 umferðir með 7 mínútur á klukkuna.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Skákstjóri verður Hörður Jónasson en Róbert Lagerman er mótstjóri mótsins.

Boðið verður upp á kaffi og súkkulaðiköku í hléi.

Glæsileg verðlaun verða í boði og vonast stjórn Vinaskákfélagsins að skákmenn fjölmenni á þetta glæsilega skákmót.

  1. Gull peningur + bókin: Friðrik Ólafsson eftir Helga Ólafsson. + 5.000 kr.
  2. Silfur peningur + bókin: The Chess Saga of Friðrik Ólafsson. + 3.000 kr.
  3. Bronze peningur + bókin: Heimsbikarmót Stöðvar 2 eftir Braga Halldórsson. +2.000 kr.

Aukaverðlaun 1 er konfektskassi.

Aukaverðlaun 2 er bókin: Heimsbikarmót Stöðvar 2 eftir Braga Halldórsson.

Allir velkomnir.

Hér er hægt að sjá hverjir hafi skráð sig: Jólaskákmót Vinaskákfélagsins

Skráning er hér fyrir neðan. Einnig hægt að skrá sig á staðnum.

Mætið tímanlega.

Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

Jólaskákmót Vinaskákfélagsins

Jólaskákmót Vinaskákfélagsins

Nafn
Nafn
First
Last
x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...