Heimsókn í Læk Athvarf 2023

Heimsókn Vinaskákfélagsins í Læk Athvarf í Hafnarfirði 2023.

Vinaskákfélagið heimsótti í dag 25 apríl 2023 Læk Athvarf í Hafnarfirði og kom færandi hendi með töfl, skákbók og skákklukku að gjöf. Þetta var áttunda heimsókn félagsins.

Tekið var vel á móti félagsmönnum, þeim Herði Jónassyni og Róbert Lagerman.

Gestir og starfsfólk í Læk Athvarf tóku á móti gjöfinni.

Afhending gjafa í Læk Athvarf

Ástæða þess að Vinaskákfélagið ákveður að gefa Búsetukjörnum, geðdeildum og Athvörfum, töfl, skákklukkur og skákbækur er til að efla skáklíf meðal fólks með geðraskanir og fá það til að vera í meiri félagskap við hvert annað. Skák er góð íþrótt til að fá fólk til að einbeita sér.

Sumarið 2020 samdi Vinaskákfélagið við Skáksambandið að það gæfi skáksett og skákklukkur í þetta verkefni og vill Vinaskákfélagið þakka þeim kærlega fyrir þeirra þátt í þessu.

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...