Melina tilbúin til að leika fyrsta leikinn

Crazy Culture skákmót Vinaskákfélagsins 2019.

Dagana 19 til 22 september verður haldið klikkuð menningardagar á vegum Reykjavíkurborgar eða Crazy culture og í tilefni þess verður haldið Crazy Culture skákmót 20 september í Vin Batasetur, Hverfisgötu 47, kl. 13:00.

Tefldar verða 6 umferðir með 4 + 2 min, á skák.
Skákstjórar verða Róbert Lagerman og Hörður Jónasson
Mótið verður reiknað til hraðskákstiga Fide.
Flottir vinningar verða m.a. Gull, silfur og bronze verðlaunapeningar og einnig bikar fyrir 1. Sæti.

Einnig verða peningaverðlaun:

  1. sæti 7.000 kr.
  2. sæti 5.000 kr.
  3. sæti 3.000 kr.

Vinaskákfélagið mun síðan bjóða upp á köku í hléi.
Og að sjálfsögðu verða starfsmenn Vinjar með kaffi og meðlæti.
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir fv. Framkvæmdastýra Geðhjálpar mun leika fyrsta leikinn.

Þeir sem hafa áhuga á að koma og tefla geta skráð sig í gula kassanum hér á skak.is. Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Ég býð sérstaklega velkomna gesti sem ekki tefla, en hafa áhuga að koma og horfa á eða kynnast starfsemi Vinjar.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...