Andrii Prudnykov vann Vinaslag 3 á Chess.com.

Vinaskákfélagið hélt skákmót á Chess.com, mánudaginn 21 nóvember sem var „Vinaslagur 3“.

Þetta var þriðja skákmótið af 4 núna í nóvember, en næsta og síðasta skákmótið verður mánudaginn 28 nóvember á Aflagranda 40 en það er Vinaslagur 4.

Þetta skákmót var frekar fámennt en góðmennt.

Tefldar voru 3 umferðir með 4 mín + 2 sek.

Hart var samt barist, en sigurvegari varð Andrii Prudnykov frá Úkraníuy með fullu húsi.

Sigurvegarar:

1 sæti: Andrii Prudnykov með 3 vinninga.

2 sæti jafnir voru Róbert Lagerman og Davíð Kjartansson með 2 vinninga.

3 sæti jafnir voru Hörður Jónasson og Olga Prudnykova með 1 vinning.

Öll úrslit er hægt að sjá hér: https://www.chess.com/tournament/live/vinaslagur-3-3536014

Ennfremur var keppt um Grand Prix stig.

Í Vinaslag 1 til 4 geta keppendur bætt við sig Grand Prix stigum og sá sem verður efstur á stigum í lokin fær 10.000 kr., í verðlaun.

Grand Prix stigin í Vinaslag 3:

Andrii Prudnykov (Úkranía) 10 stig.

Róbert Lagerman og Davíð Kjartansson með 8 stig.

Hörður Jónasson og Olga Prudnykova (Úkranía) 4 stig.

Staðan á Grand Prix stigunum eftir Vinaslag 1 – 3.

  1. Róbert Lagerman 24 stig.
  2. Andrii Prudnykov (Úkranía) 16 stig.
  3. Olga Prudnykova (Úkranía) 12 stig.
  4. Ólafur Thorsson 10 stig.
  5. Gauti Páll Jónsson og Davíð Kjartansson 8 stig.

Aðrir minna.

Aðeins um það að erlendir skákáhugamenn keppi á skákmóti Vinaskákfélagsins á chess.com, þá (ef þeir vinna verðlaun) getum við ekki greitt peninga í erlendum gjaldeyrir. Ef þeir eru staddir á Íslandi, þá eru þeir velkomnir til Vin á Hverfisgötu 47 þar sem Vinaskákfélagið er með aðalstöðvar og fengið greitt í íslenskum peningum.

Næst mót er Vinaslagur 4 sem verður mánudaginn 28 nóv., á Aflagranda 40 og verður auglýst nánar síðar.

Kv. Stjórn Vinaskákfélagsins.

x

Við mælum með

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins 25 mars 2024.

Páskaskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið í Vin, Hverfisgötu 47 í Reykjavík, mánudaginn 25 mars kl. 13:00. ...