Jólaskákmót Vinaskákfélagsins 2021.

When:
13. desember, 2021 @ 13:00 – 15:30
2021-12-13T13:00:00+00:00
2021-12-13T15:30:00+00:00
Where:
Vin Dagsetur
Hverfisgata 47
101 Reykjavík
Ísland

Hið árlega Jólaskákmót Vinaskákfélagsins fer fram næsta mánudag 13 desember í Vin Dagsetur, Hverfisgötu 47. Mótið hefst klukkan 13:00 stundvíslega.

Mótið er 6 umferðir með 7 mínútur á klukkuna.

Skákstjóri verður Hörður Jónasson en Róbert Lagerman er mótstjóri mótsins.

Boðið verður upp á kaffi og súkkulaðiköku í hléi.

Glæsileg verðlaun verða í boði og vonast stjórn Vinaskákfélagsins að skákmenn fjölmenni á þetta glæsilega skákmót.

  1. Gull peningur + bók + 5.000 kr.
  2. Silfur peningur + bók + 3.000 kr.
  3. Bronze peningur + bók + 2.000 kr.

Aukaverðlaun 1 er konfektskassi.

Aukaverðlaun 2 er skákbók.

Allir velkomnir.

Skráning er hér fyrir neðan. Einnig hægt að skrá sig á staðnum.

Mætið tímanlega.

Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

Jólaskákmót Vinaskákfélagsins

Jólaskákmót Vinaskákfélagsins

Nafn
Nafn
First
Last

 

Skrifa svar

Netfangið verður ekki notað í öðrum tilgangi.Fylla þarf út sérmerkta reiti *

*