Afmælisskákmót Vinaskákfélgsins.

When:
24. september, 2018 @ 13:00 – 15:00
2018-09-24T13:00:00+00:00
2018-09-24T15:00:00+00:00
Where:
Vin
Hverfisgötu 47
101 Reykjavík

Vinaskákfélagið verður 15 ára á þessu ári og ætlar að halda skemmtilegt skákmót mánudaginn 24 september í Vin, Hverfisgötu 47, og hefst taflið kl. 13:00.

Tefldar verða 6 umferðir með 7 mín., á skák og skipuleggjandi er Róbert Lagerman, en skákstjóri verður Hörður Jónasson. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Hlé verður gert um klukkan 14:00, þar sem gestir og skákmenn geta gætt sér á veglegum veitingum.
Góð verðlaun verða í boði.

Þið getið skráð ykkur á mótið með því að klikka á dagatalið til hægri á skak.is síðunni og farið í skráningarformið til að skrá ykkur.
Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Allir velkomnir!!

Skrifa svar

Netfangið verður ekki notað í öðrum tilgangi.Fylla þarf út sérmerkta reiti *

*